Guterres segir að norræn forysta „geti vísað veginn“

Myndbandsávarp Guterres leikið á Norðurlandaráðsþinginu í Helsinki. Mynd:Jakob Colville-Ebeling/Norden.org
Myndbandsávarp Guterres leikið á Norðurlandaráðsþinginu í Helsinki. Mynd:Jakob Colville-Ebeling/Norden.org

Norðurlandaráð. António Guterres, aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, segir að norræn forysta geti „vísað veginn“ í glímunni við hnattrænar áskoranir á borð við vaxandi ójöfnuð, loftslagsbreytingar og nýja tækni sem „þróast hraðar en geta okkar til að hafa stjórn á henni“.

Í myndbandsávarpi til sjötugasta og áttunda þings Norðurlandaráðs í Helsinki sagði Guterres að til að takast á við þessar áskoranir þyrfti samstöðu, samtal og samstilltar aðgerðir.

Ávarp aðalframkvæmdastjórans var aðalerindi í þemaumræðu undir yfirskriftinni „Norræn friðarmiðlun í breyttri heimsskipan“.

Myndbandsávarp Guterres var flutt á þemafundi um „Norræna friðarmiðlun í breyttri heimsskipan“. Mynd: Magnus Fröderberg/Norden.org
Myndbandsávarp Guterres var flutt á þemafundi um „Norræna friðarmiðlun í breyttri heimsskipan“. Mynd: Magnus Fröderberg/Norden.org

Mikilvæg fjármögnun

„Um kynslóðir hafa Norðurlöndin verið ómissandi samstarfsaðilar í baráttunni fyrir friði – allt frá Mið-Austurlöndum til Sahel-svæðisins, Rómönsku Ameríku og víðar,“ sagði Guterres. Hann benti á mikilvæga fjármögnun Norðurlandanna til að viðhalda friðarferlum og styrkja innviði friðar. Hann sagði að alþjóðasamfélagið ætti að nýta sér reynslu Norðurlandanna af verkefnum á borð við þjálfun sáttamiðlara, uppbyggingu tengslaneta, miðlun sérþekkingar og rannsóknir.

Skjáskot af ávarpinu.

„Og þið hafið sýnt hvernig konur, ungt fólk, jaðarsettir hópar og borgaralegt samfélag geta – og verða að – gegna veigamiklu hlutverki í sáttamiðlun og samningaviðræðum.“

Sáttamiðlun verður að halda í við þróunina

Aðalframkvæmdastjórinn lagði áherslu á að sáttamiðlun yrði að halda í við heim sem tekur djúpstæðum breytingum. Hann sagði að norræn forysta hefði lengi skilið mikilvægi þess að koma í veg fyrir átök, byggja upp traust og vinna að pólitískum lausnum.

Guterres dró fram þrjár „brýnar – og jafnvel tilvistarlegar – áskoranir“ þar sem hann treysti á norræna forystu.

Sjötugasta og áttunda þing Norðurlandaráðs er haldið í Helsinki
Sjötugasta og áttunda þing Norðurlandaráðs er haldið í Helsinki Mynd: Magnus Fröderberg/Norden.org

Fyrsta áskorunin, vaxandi ójöfnuður, yrði „uppskrift að efnahagslegum, félagslegum og pólitískum átökum“ ef ekkert yrði að gert. Af þeim sökum væri brýnt að auka þróunarfjármögnun, takast á við skuldakreppuna, endurskipuleggja alþjóðlega fjármálakerfið og hraða framgangi heimsmarkmiðanna um sjálfbæra þróun.

„Ég treysti á að norræn forysta haldi áfram að berjast fyrir þessu mikilvæga málefni,“ sagði aðalframkvæmdastjórinn.

Loftslagsaðgerðir og hagsæld haldast í hendur

Í öðru lagi nefndi Guterres loftslagsóreiðuna. Takist ekki að hemja hækkun hitastigs á jörðinni stafi alþjóðlegum friði og öryggi alvarleg hætta af því, þar sem það kyndir undir spennu vegna lands, vatns og matvæla, reynir á stofnanir, hrekur fólk á flótta og veldur víðtækari óstöðugleika.

„Þar sem norðurslóðir hlýna næstum fjórum sinnum hraðar en meðaltalið á heimsvísu finna Norðurlöndin einnig fyrir hitanum. Samt hafið þið sýnt að loftslagsaðgerðir haldast í hendur við frið og hagsæld. Heimurinn verður að fylgja fordæminu – og draga hratt úr losun, hraða byltingu endurnýjanlegrar orku og tryggja loftslagsréttlæti.“

Þing Norðurlandaráðs stendur yfir í Helsinki frá 26.-29.október. Mynd: Magnus
Þing Norðurlandaráðs stendur yfir í Helsinki frá 26.-29.október. Mynd: Magnus Fröderberg/Norden.org

Stjórn á gervigreind

Þriðja áskorunin er að mati Guterres „tækni sem fer úr böndunum“.

„Ég fagna ákallinu um stjórn á framsæknustu gervigreindarlíkönunum sem Finnland og Noregur hafa haft forystu um,“ sagði aðalframkvæmdastjórinn. „Og ég hvet öll aðildarríki til að bregðast hratt og sameiginlega við til að tryggja að gervigreind sé örugg, gagnsæ og ábyrg – og að mannkynið sé ávallt í forgrunni.“

Að lokum sagði Guterres að norræn forysta hefði aldrei verið verðmætari. „Saman getum við virkjað mátt samtals og diplómatíu.“