António Guterres aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna hvatti til að blásið yrði nýju lífi í friðarviðtleitni, baráttu fyrir réttlæti og sjálfbærri þróun á blaðamannafundi í New York. Á fundinum kynnti hann áherslur Sameinuðu þjóðanna á nýbyrjuðu ári andspænis aukinni spennu í heiminum og „fífldjörfum aðgerðum”, sem hefðu hættulegar afleiðingar.
2026 er síðasta ár Guterres í embætti en hann lætur af störfum um áramót. Þegar er útlit fyrir að 2026 „komi látlaust á óvart og einkennist af óreiðu,“ sagði hann á blaðamannafundinum í New York.
Keðjuverkun
Að hans mati er refsileysi hvati til átaka. Slíkt virkar sem olía á eld, eykur vantraust og laðar að sér óróaseggi úr öllum áttum.
„Á sama tíma kemur niðurskurður mannúðaraðstoðar af stað keðjuverkun angistar, fólksflótta og dauða,“ um leið og ójöfnuður eykst.
Hann minnti á að loftslagsbreytingar hefðu skeflilegar afleiðingar. Þær ýttu undir ofsaveður, jarðelda, fellibylji, þurrk og hækkandi yfirborð sjávar.
Valdaskipti
Þá stæði veröldin frammi fyrir „ef til vill umfangsmestu valdaskiptum okkar tíma. Völd færðust úr höndum ríkisstjórna yfir til einkafyrirtækja í tæknigeiranum.“
„Þegar tæknin mótar hegðun okkar, kosningar, markaði og átök án nokkurra viðmiða er árangurinn ekki nýsköpun heldur óstöðugleiki,“ varaði hann við.
Drottnun er ekki svarið
Þessar breytingar eiga sér stað á meðan þau kerfi sem ætlað er að leysa alþjóðleg vandamál endurspegla áttatíu ára gamlan efnahagslegan og pólitískan valdastrúktur.
„Kerfum okkar og stofnunum bera að endurspegla margslunginn veruleika nýrra tíma og tækifærin sem bjóðast,“ sagði hann.
„Alheimsvandamál verða ekki leyst með því að eitt ríki sé ráðandi. Ekki heldur ef tvö veldi skipta heiminum á milli sín í áhrifasvæði.“
Sameiginleg gildi
Hann sagði mikilvægt að hafa í huga við umbætur að „uppbyggingin er úrelt en það eru gildin ekki.”
Að þessu leyti hefðu höfundar sáttmála Sameinuðu þjóðanna „skilið að þau gildi sem færð voru í letur í stofnskrá okkar, voru ekki yfirborðslegar staðleysur eða vonir hugsjónamanna.“ Þau væru „skilyrði fyrir varanlegum firði og réttlæti.“
Hann sagði að þrátt fyrir ljónin á veginum myndu Sameinuðu þjóðunum takast að blása lífi í sameiginleg gildi og myndu ekki gefast upp.
