A-Ö Efnisyfirlit

Hættulegt fyrir Evrópu að vera háð jarðefnaeldsneyti  

Simon Stiell frá Grenada var skipaður forstjóri UNFCCC 2022.
Simon Stiell frá Grenada var skipaður forstjóri UNFCCC 2022. Mynd: UN Photo/Loye Felipe

Simon Stiell loftslagsstjóri Sameinuðu þjóðanna segir að atburðir undanfarinna vikna í Mið-Austurlöndum sýni fram á hvílík hætta felist í því fyrir Evrópu að vera háð innfluttu jarðefnaeldsneyti.

„Undanfarnar vikur hafa kennt okkur enn eina ömurlegu lexíuna,”sagði Stiell í ræðu á ráðstefnu um grænan hagvöxt í Brussel.

„Að vera háður jarðefnaeldsneyti grefur undan þjóðaröryggi og fullveldi en í staðinn kemur undirgefni og hækkandi kostnaður. Og Evrópa er háðari innflutningi á jarðefnaeldsneyti en nánast nokkurt annað stórt hagkerfi.”

Innflutningur jarðefnaeldsneyti kostaði 420 milljarðar evra árið 2024.

Sólarorka er ekki háð stórveldapólitík.
Sólarorka er ekki háð stórveldapólitík. Mynd: Anders J/UNsplahs

Upp á náð og miskunn

„Fíkn í jarðefnaeldsneyti þýðir að efnahagur, heimilisbókhald og afkoma fyrirtækja eru upp á náð og miskunn landfræðilegra áfalla og verðsveiflna í ólgusömum heimi. Heimi sem einkennist af upplausn, valda-pólitík og stríði.”

Stiell benti á að rafmagnsverð færi hækkandi og líklegt væri að verðbólga skyti upp kollinum á ný.

„Vegna þess að stríðið í Mið-Austurlöndum hefur knúið áfram verðhækkanir á olíu og gasi. Rétt eins og stríðið í Úkraínu á undan.“

Á sama tím er endurnýjanleg orka ódýrari, öruggari og fljótari á markað.

Kreppur munu endurtaka sig

„Sagan sýnir okkur að kreppa jarðefnaeldsneytis endurtekur sig sí og æ. Í þessum nýja heimi upplausnar þar sem sum stórveldi haga sér eins og þeim sýnist óbundin af efnahagslegum rökum eða bandalögum.“

Hann sagði að svo lengi sem Evrópa væri háð innlutningi jarðefnaeldsneytis myndi hún skjögra frá einni kreppu til annarra og heimili og fyrirtæki borguðu brúsann.

Vindorka þarf ekki á flotastyrk að halda.
Vindorka þarf ekki á flotastyrk að halda. Mynd: Nicholas Doherty/Unsplash

„En endurnýjanleg orka skiptir sköpum. Sólarljósið er ekki háð þröngum og hættulegum siglingum um sund. Vindurinn krefst ekki of fjár úr vasa-skattgreiðenda til að kosta flota-varnir.“

Endurnýjanleg orka gerir löndum kleift að einangra sig frá alþjóðlegum óróa og sniðganga valdapólitík þar sem mátturinn einn ræður rétti.“

Að auki sagði loftslagsstjórinn að endurnýjanleg orka væri góð viðskipti.

„Evrópa getur haslað sér völl í gullnámu margra milljarða evra fjárfestinga sem er rétt að byrja.“

Simon Stiell hefur verið forstjóri UNFCCC, stofnunarinnar sem heldur utan um rammasamning Sameinuðu þjóðanna um loftslagsbreytingar, frá 2022.