A-Ö Efnisyfirlit

Hálf milljón barna í lífshættu

Smali

 Smali

Hálf milljón barna er í bráðri lífshættu í löndunum á austurodda Afríku að sögn UNICEF, Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna. Alls teljast tvær milljónir barna vera í hættu. Ekkert útlit er fyrir bætt matvælaástand fyrr en í ársbyrjun næsta árs, 2012 og því mun ástandið fyrirsjáanlega versna enn frekar.
 “Það leggst beinlínis allt á eitt til að gera ástandið slæmt- átök í Sómalíu, hækkandi eldsneytis- og matarverð og þurrkar og úrkomuleysi, “ segir Anthony Lake, forstjóri UNICEF sem nýkominn er frá Kenía. Það eru enn fjórir til fimm mánuðir í næstu uppskeru og það er því mikið starf framundan. Víða er fólk of fátækt eða of veikburða til að geta farið fótgangandi til að leita sér aðstoðar.”  

Fyrsta vélin í loftbrú með neyðaraðstoð handa hundruð þúsundum landflótta Sómala lenti í Nairobi, höfuðborg Kenía á sunnudag (17. júlí).  
Fyrsta risa-flutningavélin á vegum Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna (UNHCR) var með hundrað tonn af tjöldum ætluð Dadaab flóttamannaabúðakjarnanum nærri landamærum Kenía og Sómalíu.  

Loftbrúnni er ætlað að aðstoða meir en 430 þúsund sómalska flóttamenn í Kenía og Eþíópíu en þar af hafa 164 þúsund leitað hælis frá ársbyrjun. Talið er að þrjú þúsund komi yfir landamærin daglega á flótta undan óöryggi, þurrkum og hungri í Sómalíu.

Sómalía er það land á austurodda Afríku sem verst hefur orðið úti í þurrkum sem herja á þennan heimshluta en talið er að 11 milljónir manna þurfi mannúðaraðstoð.
Sameinuðu þjóðirnar hafa farið fram á 1.6 milljarða Bandaríkjadollara framlög til að koma fólkinu til aðstoðar en einungis tekist að afla helmings þess fjár. Kenía, Sómalía, Eþíópía og Djibouti hafa öll orðið fyrir miklum búsifjum af völdum þurrkanna sem taldir eru þeir verstu í hálfa öld.