Hálfur milljarður í bóluefni gegn COVID-19

0
677
Bóluefni
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra. Mynd: forsætisráðuneytið.

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, hefur tilkynnt um framlag Íslands til þróun bóluefnis gegn COVID 19. Gerðu hún það á fundi bólusetningarbandalagsins Gavi í gær.

 António Guterres aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna lagði þunga áherslu á í ávarpi sínu til fundarins að allir íbúar heimsins yrðu að fá aðgang að bóluefni.

„Við þurfum á samstöðu alls heimsins að halda til þess að tryggja að enginn sé skilinn út undan. Allir; hver einasta manneskja, alls staðar, hafi aðgang að bóluefni,” sagði António Guterres aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna í myndbandsávarpi til fundarins.

Aðgerðabandalagið miðar að því að hraða þróun, framleiðslu og dreifingu á bóluefni við COVID-19. Það  var stofnað fyrir rúmum mánuði. Markmið þess er jafnframt að stuðla að sýnatökum og meðferðarúrræðum fyrir alla, óháð búsetu og efnahag.

Framlag Íslands skiptist í tvennt.  250 milljónir króna fara til bólusetningarbandalagsins Gavi. Sama upphæð rennur til CEPI (e; Coalition for Epidemic Preparedness Innovation). Það er samstarfsvettvangur fyrirtækja og opinberra aðila um viðbúnað gegn farsóttum.

Fjölmargar alþjóðastofnanir og sjóðir á sviði heilbrigðismála, auk Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar standa að aðgerðabandalaginu. Hefur fjöldi ríkja tilkynnt um framlög til mismunandi stofnana undir hatti þess. Þannig hafa Norðmenn lofað milljarði Bandaríkjadala.  Bandaríkin, Bretland, Kanada og Þýskaland hafa llofað hundruðum milljóna Bandaríkjadala.

Bóluefni
Katrín Jakobsdóttir á fjarfundi bóluefnis-bandalagsins. Mynd: forsætisráðuneytið.

Jafn aðgangur

Forsætisráðherra lagði í ræðu sinni áherslu á jafnan aðgang allra að heilsugæslu og öruggum bóluefnum óháð kyni, efnahag og búsetu. „Jafn aðgangur að heilbrigðisþjónustu er einn mikilvægasti þáttur heilbrigðismála. Hann tryggir grunnmannréttindi; réttinn til lífs. Bólusetning færir öllum kynslóðum tækifæri til heilbrigðrar og innihaldsríkrar ævi,“  sagði Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, í upphafsávarpi sínu en hún sat jafnframt fyrir svörum á fjölmiðlafundi í lok ráðstefnunnar.

Auk forsætisráðherra Íslands ávarpaði fjöldi þjóðarleiðtoga fjarráðstefnuna sem boðað var til af Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands. Bill Gates, stofnandi Microsoft, var jafnframt einn ræðumanna. Stofnun Bill og Melindu Gates, hefur heitið 250 milljónum Bandaríkjadala til baráttunnar gegn COVID-19. Markmið Gavi ráðstefnunnar í dag var að safna samtals 7,4 milljörðum Bandaríkjadala og náðist það og gott betur því alls söfnuðust 8.8 milljarðar.

(frá forsætisráðuneytinu).