
Kyio Akasaka, yfirmaður upplýsingadeildar Sameinuðu þjóðanna (DPI).
“Það sem meira er: Hammarskjöld innnleiddi anda virkrar þjónustu í almannaþágu í starf Sameinuðu þjóðanna og þetta má sjá í bestu verkum samtakanna”, sagði Akasaka á Hanaforum-ráðstefnunni og benti sérstaklega á “baráttu fyrir mannréttindum, baráttu gegn refsileysi, útbreiðslu lýðræðislegra grundvallargilda…” og viðleitnina til að ná að framfylgja Þúsaldarmarkmiðunum fyrir árið 2015.
Hammarskjöld var annar framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna og gegndi starfi sínu frá apríl 1953 til september 1961, en þá lést hann í flugslysi á meðan hann reyndi að miðla málum í Kongó. Hann fékk friðarverðlaun Nóbels síðar sama ár.

Dag Hammarskjöld, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna 1953-1961.
