13.nóvember 2014. Harpa og Höfði verða böðuð í bláu ljósi á Alþjóðadag Sykursjúkra, 14. nóvember.
Samtök Sykursjúkra á Íslandi hafa um árabil haldið hátíðlegan Alþjóðadag Sykursjúkra, hinn 14.nóvember. Þennan dag eru stórhýsi um allan heim, líkt og höfuðstöðvar Sameinuðu þjóðanna í New York (sjá mynd) lýst upp með bláu ljósi, en blár er litur IDF, Alþjóðasamtaka Sykursjúkra. „Við hér á Íslandi munum lýsa upp Hörpu í fyrsta skipti og Höfða eins og undanfarin ár,“ segir í frétt frá Samtökum sykursjúkra á Íslandi.

Rannsóknir benda til að gera megi ráð fyrir að fyrir hvern greindan séu tveir aðrir sem ganga með sjúkdóminn án þess að vita af því. Þetta fólk verður samfélaginu mjög dýrt því sykursýki geta fylgt mjög alvarlegir, og þar með dýrir, fylgikvillar, svo sem æða-, tauga-, augn- og nýrnaskemmdir. Sykursýkin greinist þá hjá þessum einstaklingum þegar þeir leita læknis vegna áhrifa fylgikvillanna. Góðu fréttirnar eru hins vegar þær að hægt er að spyrna við fótum með öflugum forvörnum. Með því að hvetja almenning til heilbrigðari lífshátta má minnka þann gífurlega kostnað sem af þessum sjúkdómi hlýst, því vitað er að offita, hreyfingarleysi, streita, hátt kólesteról og hár blóðþrýstingur eykur verulega líkurnar á því að menn þrói með sér sykursýki af tegund 2.
Sjá heimasíðu Samtaka sykukrsjúkra hér.

