Hlífa ber fátækustu ríkjunum í viðskiptastríði

Tollar. Bandaríkin.

Yfirmaður viðskipta- og þróunarstofnunar Sameinuðu þjóðanna hefur hvatt til þess að gerðar verði undantekningar vegna fátækustu ríkja heims nú þegar mikill órói er á mörkuðum vegna tollahækkana, einkum í Bandaríkjunum.

Rebeca Grynspan forstjóri UNCTAD bendir á að fátækustu ríkin vegi ekki þungt þegar halli á viðskiptum ríkja við útlönd er annars vegar.

Skip-Singapore-höfn-Norður-Evrópu-UNCTAD
Skip frá Singapore í höfn í Norður-Evrópu. Mynd: UNCTAD

Grynspan er ekki eini yfirmaður Sameinuðu þjóðanna sem hefur látið í ljós áhyggjur af hlutskipti viðkvæmustu þróunarríkja í þeirri óvissu sem nú ríkir.

António Guterres aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna sagði á þriðjudag að „viðskiptastríð væru einstaklega neikvæð” og varaði við „skelfilegum” afleiðingum.

Hlutur minnst þróuðu ríkja lítill

Tollar eru skattur sem lagður á vörur sem fluttar eru inn til lands. Þeir eru venjulega hlutfall af virði vöru og leggst aukakostnaðurinn á verðið sem neytandi greiðir.

Konur að störfum í vefnaðariðnaði í Víetnam. Mynd: ILO Asia-Pacific
Konur að störfum í vefnaðariðnaði í Víetnam. Mynd: ILO Asia-Pacific

Forstjóri UNCTAD hefur hvatt Bandaríkin til að endurskoða áætlanir sínar. Hún bendir á að hlutur 44 minnst þróuðu ríkja heims í viðskiptahalla Bandadríkjanna sé innan við tvö prósent. Hærri tollar myndu einungis vera olía á eld skuldakreppu þeirra.

„Þegar tvö helstu hagkerfi heims setja á innflutningstolla, snertir það alla, ekki einungis ríkin, sem eru í tollastríði,“ segir Grynspan. Hún lét í ljós áhyggjur af því að hægjast muni á hjólum efnahagslífs alls heimsins. Minnst þróuðu ríkin bæru enga ábyrgð á viðskiptahalla Bandaríkjanna.

„Stærstur hluti útflutnings þeirra til Bandaríkjanna eru vörur og mikill hluti þeirra er undansklinn samkvæmt nýju reglunum. Þær keppa ekki við innlenda vöru, heldur eru hluti af framleiðsluferli.“

Fréttir