Stríð verða sífellt mannskæðari fyrir konur og stúlkur. Þær voru fjórðungur rúmlega 37 þúsund óbreyttra borgara sem létust í vopnuðum átökum á síðasta ári. Það er tvöfalt hærra hlutfall en árið 2021 – samkvæmt viðamikilli skýrslu Sameinuðu þjóðanna sem kom út í vikunni.
Að minnsta kosti 25 konur og stúlkur eru drepnar á hverjum degi á átakasvæðum, samkvæmt árlegri skýrslu aðalframkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna um konur, frið og öryggi. Á sama tíma og dauðsföllum óbreyttra borgara fjölgar færist kynferðisofbeldi í aukana. Þá eru konur enn að mestu útilokaðar frá friðarviðræðum. Um 750 milljónir kvenna og stúlkna búa nú innan við 50 kílómetra frá virkum átökum, 40 milljónum fleiri en árið 2024 og fleiri en nokkru sinni frá 1990.
„Fleiri konur og stúlkur eru fastar í stríðum en nokkru sinni í áratugi. Samt halda útgjöld til hermála áfram að aukast og þróunaraðstoð að dragast saman, þótt fjárfesting í forystu kvenna, forvörnum gegn átökum og friðaruppbyggingu hafi aldrei verið brýnni,“ sagði Sima Bahous, framkvæmdastýra UN Women.
Meira en sprengjur
Árið 2025 staðfestu Sameinuðu þjóðirnar 9 788 tilvik kynferðisofbeldis tengd átökum, meira en tvöfalt fleiri en árið áður og næstum fjórum sinnum fleiri en árið 2022. Á Haítí fjölgaði tilkynntum tilvikum kynferðisofbeldis um 163%. Á Gaza hafa eyðilegging sjúkrahúsa og fæðingardeilda og hrun aðgengis að nauðsynjum stuðlað að 41% fækkun lifandi fæðinga og 300% fjölgun fósturláta.
Stríð hrekja konur einnig dýpra í fátækt. Um 170 milljónir kvenna og stúlkna búa bæði á átakasvæðum og við sára fátækt og lifa á minna en 3 dölum á dag, og í löndum sem átök hafa áhrif á verja þær fimm sinnum fleiri klukkustundum í ólaunuð umönnunarstörf en karlar og drengir.
Aukin notkun dróna og langdrægra vopna á þéttbýlum svæðum – þar á meðal árásir á skóla, markaði og sjúkrahús – vekur enn frekari áhyggjur af öryggi, segir í skýrslunni.
Útilokaðar frá friði
Samt eru konur enn að mestu útilokaðar frá viðleitni til að binda enda á átökin. Árið 2025 voru þær aðeins 5% samningamanna í 57 friðarferlum, en hlutfallið var 7% árið áður, og ekkert af 13 vopnahléssamkomulögum bannaði sérstaklega kynferðisofbeldi tengt átökum. Á sama tíma náðu útgjöld til hermála á heimsvísu metupphæð, 2,9 billjónum dala, á síðasta ári, en 40% kvennasamtaka á hættusvæðum gera ráð fyrir að loka tímabundið eða varanlega innan árs vegna alvarlegs fjárskorts.
„Stríð er val mannsins. Það er friður líka,“ segir Nyaradzayi Gumbonzvanda, aðstoðarframkvæmdastýra UN Women.
