Bráðavannæring og hungur í Afganistan hafa náð hæstu stigum sem nokkru sinni hafa mælst. 15,9 milljónir manna búa við bráðan fæðuskort og búist er við að ástandið versni á næstu mánuðum, samkvæmt skýrslu sem birt var á fimmtudag.
Yfirmenn stofnana Sameinuðu þjóðanna kalla eftir neyðaraðstoð til að stemma stigu við neyðinni, á sama tíma og önnur skýrsla greinir frá alvarlegum mannréttindabrotum – allt frá opinberum hýðingum til nýs banns við mótmælum.
Hungur á neyðarstigi
Bráðavannæring náði hæstum hæðum á tímabilinu ágúst–október að mati IPC alþjóðlegs framtak sem miðar að því að styðja við ákvarðanatöku á grundvelli fimm stiga fæðuöryggis.Þetta þýðir einfaldlega að milljónir Afgana líða hungur.
Efnahagsþrengingar reyna á heimili um allt land og eiga þátt í því að meira en 32 prósent íbúanna búa við bráðan fæðuskort á þriðja stigi (neyðarástandi) eða hærra, þar á meðal 3,4 milljónir manna sem búa við aðstæður á fjórða stigi (bráðaneyð).
Ástæða neyðarástandsins nú eru sjúkdómsfaraldrar og ófullnægjandi aðgengi að vatni, salernisaðstöðu og hreinlæti, auk þess sem aðgengi að næringarþjónustu hefur dregist verulega saman, að því er fram kemur í skýrslunni.
Ástandið mun versna
Búist er við að ástandið versni frá nóvember til apríl á vetrarskortstímanum, þegar áætlað er að nærri 19,2 milljónir manna muni búa við þriðja stig eða hærra, þar á meðal fimm milljónir manna við bráðaneyð vegna fæðuskorts.
Einnig er búist við að bráðavannæring aukist verulega, en áætlað er að 4,04 milljónir barna undir fimm ára aldri þurfi á meðferð að halda frá janúar til desember 2027.
„Þótt aukin úrkoma og betri landbúnaðarframleiðsla hafi stutt við framboð matvæla dregur minnkandi mannúðaraðstoð úr getu heimila til að takast á við ástandið,“ segir í skýrslunni.
‚Enn er svigrúm til aðgerða‘
Matvælaáætlun Sameinuðu þjóðanna (WFP) og Matvæla- og landbúnaðarstofnun Sameinuðu þjóðanna (FAO) sendu frá sér afdráttarlaus skilaboð á fimmtudag í síðustu viku og kölluðu eftir brýnu fjármagni til að auka matvælaaðstoð, neyðarstuðning við landbúnað og forvarnir og meðferð gegn vannæringu.
„Við höfum enn svigrúm til aðgerða, en það er óðum að lokast,“ sagði John Aylieff, landsstjóri WFP. „Með brýnum stuðningi geta fjölskyldur komist í gegnum veturinn með reisn. Án hans munu margar standa frammi fyrir ómögulegum ákvörðunum sem ekkert foreldri ætti að þurfa að taka.“
Richard Trenchard, fulltrúi FAO, sagði að fjölskyldur þyrftu tækifæri til að afla sér öruggrar framfærslu sem „hjálpar þeim að standast næsta áfall“ og stuðning til að komast í gegnum þennan vetur.
Hert að konum, fjölmiðlum og borgaralegu rými
Sendinefnd Sameinuðu þjóðanna í Afganistan (UNAMA) greindi frá því á fimmtudag að grundvallarmannréttindi hefðu haldið áfram að rýrna um allt land á tímabilinu júlí til september, og að konur og stúlkur yrðu verst úti vegna takmarkana sem stjórnvöld talibana hafa sett.
Lesið skýrsluna í heild sinni hér
Sjá einnig hér.
