Súdan. Hungur. Hungursneyð.
Matvælaástandið í Súdan er orðið mjög alvarlegt. Hrein hungursneyð ríkir sums staðar, og enn víðar glíma íbúarnir við alvarlega vannæringu. Samkvæmt nýju mati Sameinuðu þjóðanna og samstarfsaðila þeirra hefur fjöldaflótti innanlands aukið vandann umtalsvert.
Rúmlega tuttugu og fjórar og hálf milljón manna glíma nú við fæðuóöryggi á háu stigi, eða sem samsvarar nærri öllum Norðurlandabúum. Samkvæmt stöðlum Alþjóðlegrar nefndar (IPC) sem metur matvælaástand og hungur í heiminum ríkir nú hungursneyð (5.stig) á ekki færri en fimm svæðum, þar á meðal í Zamzam búðunum í Norður-Darfur og vesturhluta Nuba-fjalla.
Hamfara hungur
Allsherjar hungursneyð herjar á 638 þúsund manns. Á máli sérfræðinga er það fimmta stig hungurs sem flokkast sem hamfarir; sultur samfara algjörri vannæringu sem leiðir til dauða. Rétt tæpar sextán milljónir teljast vera á 3.stigi hungurs. Skilgreining þess er að langt sé á milli máltíða og fólkið reiði sig alfarið á utanaðkomandi hjálp. 4.stigið þýðir að viðkomandi megi þola alvarlega vannæringu.
Óttast er að ástandið versni og teljist hungursneyð á fimm svæðum til viðbótar, sérstaklega í Norður-Darfur frá desember 2024 til mars 2025.
17 svæði til viðbótar eru í hættu, sérstaklega gríðastaðir fólks á flótta undan átökum. Auk norður- og suðurhluta Darfur, er Khartoum, höfuðborgin, í þessum hópi.
Hindra ber frekari stigmögnun
António Guterres aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna segir að samtökin og samstarfsaðilar þeirra hafi aukið matvælaaðstoð sína. Hins vegar standa áframhaldandi átök og hindranir í vegi flutninga matvælaaðstoðar, hjálparstarfinu fyrir þrifum.
„Aðalframkvæmdastjórinn ítrekar fyrri áskoranir til stríðandi fylkinga um að greiða fyrir skjótum, óhindruðum og varanlegum flutningi mannúðaraðstoðar og starfsfólks til þess að hægt sé að ná til nauðstadds fólks,“ sagði talsmaður hans í yfirlýsingu.
Guterres lagði áherslu á að binda verði enda á átök til að bjarga mannslífum og koma í veg fyrir að átökin í Súdan stigmagnist enn á næsta ári.
