Hvar er þríeykið gegn kynbundnu ofbeldi?

0
629
Kynbundið ofbeldi
Harpa klæðist appelsínugulu í tilefni Alþjóðlegs baráttudags gegn kynbundnu ofbeldi.

Landsnefnd UN Women á Íslandi spyr „Hvar er þríeykið gegn kynbundnu ofbeldi? í fréttatilkynningu í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi gegn kynbundnu ofbeldi 25.nóvember.

Þá hefst árlegt 16 daga alheimsátak gegn kynbundnu ofbeldi. Í ár er þemað: „Öflum fjár, bregðumst við, fyrirbyggjum og söfnum upplýsingum!“ (Orange the World: Fund, Respond, Prevent, Collect!“). Vegna COVID-19 verður því miður engin Ljósaganga UN Women í ár sem vanalega markar upphaf 16 daga átaks gegn kynbundnu ofbeldi sem lýkur svo 10. desember á alþjóðlegum mannréttindadegi. Harpa verður hins vegar lýst upp í appelsínugulum lit líkt og undanfarin ár, en liturinn er táknrænn litur fyrir von og bjarta framtíð kvenna og stúlkna án ofbeldis. Og í dag hvetur UN Women á Íslandi öll til að kveikja á kertum í minningu þeirra 45.073 kvenna sem myrtar hafa verið af hendi náins fjölskyldumeðlims á heimsvísu það sem af er ári 2020.

Skuggafaraldur

Samhliða alvarlegum efnahags- og félagslegum áhrifum heimsfaraldursins COVID-19 og aukinni félagslegri einangrun fólks hefur „skuggafaraldur“ kynbundins ofbeldis farið vaxandi um allan heim. Margar konur og stúlkur eru einangraðar og bundnar heima með ofbeldismönnum sínum vegna samkomu- og útgöngubanna. Nýjustu úttektir og rannsóknir benda til þess að þrír mánuðir af útgöngubanni þýði að 15 milljónir kvenna og stúlkna til viðbótar verði beittar kynbundnu ofbeldi. Á sama tíma er fjármagni oft beint frá nauðsynlegri stoðþjónustu á borð við kvennaathvörf og neyðarlínur.

Konur: 70% framlínunnar

Á heimsvísu hafa yfir 240 milljónir kvenna þurft að þola ofbeldi af hendi nákomnum aðila á síðustu tólf mánuðum. Þessi fjöldi mun að öllum líkindum aukast þar sem áhyggjur af heilsufari og fjárhagslegu öryggi skapar aukna streitu á heimilum sem þegar eru undir miklu álagi. Faraldurinn hefur einnig hræðileg áhrif á konur og stúlkur með fötlun sem geta átt í erfiðleikum með að tilkynna ofbeldi og misnotkun. Þá eru einnig aðrir jaðarsettir hópar í hættu svo sem konur í flóttamannabúðum.

Á sama tíma og 70% þeirra sem eru í framlínunni um allan heim að bjarga mannslífum vegna COVID-19 eru konur, hefur ekkert þríeyki stigið fram til að bjarga þeim 137 konum sem drepnar eru á hverjum einasta degi allan ársins hring. Tölurnar eru sláandi, svo við hjá UN Women spyrjum því, hvar er þríeykið gegn kynbundnu ofbeldi?

(Fréttatilkynning frá Landsnefnd UN Women á Íslandi)