A-Ö Efnisyfirlit

Í kapphlaupi fyrir hreinu lofti

Loftmengun þekkir engin landamæri
Loftmengun þekkir engin landamæri Mynd: Lona - Unsplash

Loftmengun. Það er það fyrsta, sem við komumst í snertingu við í heiminum. Við öndum því að okkur tólf sinnum á mínútu. Það heldur lífi í okkur eða eitrar fyrri okkur. 99% heimbúa anda að sér menguðu lofti. Við þolum það ekki lengur. 7.september er Alþjóðlegur dagur hreins lofts.

Loftmengun er mesta umhverfisógnunin við heilsu okkar í heiminum. Hún ýtir undir loftslagsbreytingar,veldur efnahagslegum skaðað og minnkar framleiðni í landbúnaði.

Alþjóðlegur dagur hreins lofts 7. september.
Alþjóðlegur dagur hreins lofts 7. september.

Loftmengun þekkir engin landamæri. Öll berum við ábyrgð á því að vernda andrúmsloftið okkar og tryggja að allir hafi heilsusamlegt loft. Með því að vinna saman þvert á landamæri, þvert á greinar og þvert á einingar getum við dregið úr loftmengun með því að fjárfesta saman í tíma, úrræðum og viðleitni.

Tryggjum öllum hreint loft

Þema sjötta Alþjóðlega dags hreins lofts fyrir bláan himinn, Í kapphlaupi fyrir hreinu lofti (Racing for Air) leggur áherslu á þörfina á skjótari lausnum og sameiginlegum aðgerðum til að tryggja öllum hreint loft.

Alþjóðlegur dagur hreins lofts 7. september.
Alþjóðlegur dagur hreins lofts 7. september.

Herferð UNEP, Umhverfisstofnunar Sameinuðu þjóðanna í tilefni dagsins tengir saman hreint loft og íþróttir, hæfni, seiglu og jöfnuð. Henni er ætlað að minna á þörfina á brýnum aðgerðum og að færa athyglina frá vandanum að lausnum.

Loftmengun er annar algengsti áhættuþáttur snemmbærra dauðsfalla í heiminum. Hún tengist 8.1 milljón snemmbærra dauðsfalla af völdum heilablóðfalla, hjartasjúkdóma, lungnakrabbameins og bráðra öndunarfærasýkinga.

Alþjóðlegur dagur hreins lofts 7. september.
Alþjóðlegur dagur hreins lofts 7. september.

Umbreytingaalda

Á þessum Alþjóðlega degi hreins lofts fyrir bláan himinn hvetur UNEP, Umhverfisáætlun Sameinuðu þjóðanna, alla – hvort heldur sem er ríkisstjórnir og fyrirtæki, borgaralegt samfélag eða einstaklinga til að taka þátt í kapphlaupi um lausnir. Við erum í kapphlaupi fyrir hreint loft.

Með því að ráðast gegn loftmengun getum við komið af stað umbreytingaöldu og tryggt öllum heilsusamlegt andrúmsloft.

Sjá vefsíðu herferðar UNEP hér.