70 milljónum plastpoka er hent hér á landi á hverju ári og má gera ráð fyrir að verulegur hluti þeirra lendi fyrr eða síðar í sjónum.

Plastmengun í sjónum er efni klukkustundarlangrar heimildarmyndar, Plaststrendur (Plastic shores) sem verður sýnd í Bíó Paradís á Alþjóðlegum 
Umræður verða á eftir myndinni með þátttöku Egils Helgasonar, sjónvarpsmanns, Hrannar Ólínu Jörundsdóttur, doktors í umhverfisefnafræði og verkefnisstjóra hjá MATÍS, Karenar Kjartansdóttur, upplýsingafulltrúa Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi og Árna Snævarr, upplýsingafulltrúa Sameinuðu þjóðanna.
UNRIC, Upplýsingaskrifstofa Sameinuðu þjóðanna, Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS), Evrópustofa og Félag Sameinuðu þjóðanna á Íslandi standa að sýningu myndarinnar.

Umhverfisspjöll af völdum plastmengunar eru gríðarleg. Við Norðursjó finnst plast í maga 94% fugla. Plastagnir geta fundið sér leið inn í vefi líkamans þegar við borðum fisk.
Í landsáætlun um meðhöndlun úrgangs á Íslandi fyrir árin 2013–2024 kemur fram að ætla megi að um 70 milljónum plastpoka sé fleygt á hverju ári hér á landi en það eru um 1.120 tonn og til þess að framleiða þennan fjölda poka þarf um 2.240 tonn af olíu. En plast virðir hvorki landamæri né lögsögu ríkja og okkur stafar ekki síður hætta af plastmengun annara ríkja en okkar eigin. Talið er að árlega endi átta milljarðar plastpoka í ruslinu í Evrópu sem hefur í för með sér alvarlegar afleiðingar fyrir lífríkið. Hafstraumar hafa smalað plastögnum úr plastpokum og ýmsu öðru í gríðarstóra fláka sem hringsnúast á Kyrrahafi, Atlantshafi og Indlandshafi.
Evrópuþingið hefur nýverið samþykkt harðar aðgerðir sem miða að því að minnka notkun þunnra plastpoka sem valda mestri mengun, ýmist með 
Fyrir Alþingi liggur einnig tillaga til þingsályktunar frá þingmönnum úr öllum flokkum um að draga úr notkun plastpoka.

