Ísland eykur enn framlög til mannúðaraðstoðar á Gasa

0
34
Bjarni Benediktsson, utanríkisráðherra ásamt Amina Mohammed vara-aðalframkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna 2017.
Bjarni Benediktsson, utanríkisráðherra ásamt Amina Mohammed vara-aðalframkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna 2017. Mynd: UN Photo/Evan Schneider

Gasasvæðið. Mannnúðaraðstoð. Utanríkisráðherra hefur ákveðið að veita 100 milljóna króna viðbótarframlag vegna átakanna fyrir botni Miðjarðarhafs. Framlagið verður veitt til Palestínuflóttamannaaðstoðar Sameinuðu þjóðanna (UNRWA) og Alþjóðlega sakamáladómstólsins (ICC). Ráðherra kynnti aukin framlög á fundi ríkisstjórnarinnar í dag, að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá utanríkisráðuneytinu. 

„Mannúðarástandið á Gaza fer enn versnandi og þörfin fyrir aðstoð og nauðþurftir er mikil. Við Íslendingar höldum áfram að leggja okkar af mörkum við þessar aðstæður. UNRWA er meginviðbragðsaðili Sameinuðu þjóðanna í þeirri neyð sem ríkir meðal almennra borgara og Alþjóðlegi sakamáladómstóllinn hefur lögsögu í Palestínu þegar kemur að því að rannsaka alþjóðaglæpi, þar á meðal stríðsglæpi,“ segir Bjarni Benediktsson utanríkisráðherra.

Philippe Lazzarini forstjóri UNRWA komst í fyrsta skipti til Gasa frá því átök hófust á dögunum og hélt fundi með starfsfólki.
Philippe Lazzarini forstjóri UNRWA á fundi með starfsfólki á Gasa. Mynd: UNRWA

Með framlaginu sem tilkynnt var um í dag nema heildarframlög Íslands, vegna átakanna fyrir botni Miðjarðarhafs, 240 milljónum króna, til viðbótar við framlög til Alþjóðlega sakamáladómstólsins. Þetta er í þriðja sinn frá því átökin hófust sem íslensk stjórnvöld veita viðbótarframlag til UNRWA og í ár er Ísland meðal hæstu framlagsríkja miðað við höfðatölu.

UNRWA gegnir lykilhlutverki

UNRWA gegnir lykilhlutverki við að koma nauðþurftum á borð við mat og vatn inn á Gaza og dreifa þeim. Um  830 þúsund manns, eða helmingur allra vegalausra einstaklinga á svæðinu, hafa leitað skjóls í neyðarskýlum stofnunarinnar sem áður hýstu skólastarf, heilsugæslu og aðra þjónustu á hennar vegum. UNRWA er ein af samstarfsstofnunum Íslands í mannúðarmálum, en virkt innra og ytra eftirlit er með störfum og ráðstöfun fjármuna hennar líkt og annarra stofnana Sameinuðu þjóðanna, meðal annars af hálfu framlagsríkja.

Í þingsályktunartillögu sem samþykkt var af öllum flokkum á Alþingi þann 9. nóvember  síðastliðinn var kallað eftir tafarlausu vopnahléi af mannúðarástæðum á Gaza, óhindruðu aðgengi að nauðþurftum og skýr krafa gerð um að alþjóðalög séu virt. Þá voru hryðjuverk Hamas, sem kostuðu á annað þúsund almennra borgara í Ísrael lífið, fordæmd og krafa gerð um tafarlausa lausn yfir 240 gísla í haldi Hamas, en þar af eru um 30 börn.

Sama ákall hefur ítrekað komið fram í yfirlýsingum íslenskra stjórnvalda á opinberum vettvangi og á vettvangi Sameinuðu þjóðanna.