Ísland í framkvæmdastjórn UNESCO

0
635
Ísland UNESCO
Íslenska sendinefndin á aðalráðstefnunni: Guðrún Þorsteinsdóttir, Ragnar Þorvarðarson, Unnur Orradóttir Ramette, Elín Flygenring og Áslaug Dóra Eyjólfsdóttir. - myndUtanríkisráðuneytið Íslenska sendinefndin á aðalráðstefnunni: Guðrún Þorsteinsdóttir, Ragnar Þorvarðarson, Unnur Orradóttir Ramette, Elín Flygenring og Áslaug Dóra Eyjólfsdóttir. Mynd: utn.

Ísland var kosið í framkvæmdastjórn Mennta-, vísinda og menningarmálastofnunar Sameinuðu þjóðanna (UNESCO) í dag með yfirgnæfandi stuðningi á aðalráðstefnu stofnunarinnar sem nú stendur yfir í París. Innan Vesturlandahópsins voru Austurríki og Tyrkland einnig í framboði. Ísland hlaut flest atkvæði í kosningunni, eða 168 en 178 ríki greiddu atkvæði.

Í frétt frá stjórnarráðinu segir að íkisstjórnin hafi tekið ákvörðun um framboðið árið 2018 og fastanefnd Íslands hjá UNESCO, utanríkisráðuneytið, mennta- og menningarmálaráðuneytið sem og íslenska UNESCO-landsnefndin unnið síðustu ár að því að efla störf Íslands innan stofnunarinnar. Í framkvæmdastjórn sitja 58 ríki og er almennt mikil samkeppni meðal hinna 193 aðildarríkja UNESCO um sæti í framkvæmdastjórn.

Stjórnin starfar með umboð frá aðalráðstefnu stofnunarinnar og ber m.a. ábyrgð á eftirfylgni ákvarðana,  greinir starfs- og fjárhagsáætlun stofnunarinnar sem framkvæmdastjóri leggur fyrir, leiðbeinir um verkefni og sinnir eftirlitshlutverki með þeim.

Sérstofnun SÞ

UNESCO er sérstofnun SÞ sem hefur það að markmiði að stuðla að friði og öryggi í heiminum með því að efla alþjóðlega samvinnu í málaflokkum stofnunarinnar. UNESCO ber m.a. höfuðábyrgð innan SÞ-kerfisins á innleiðingu heimsmarkmiðs fjögur um menntun og er sú stofnun SÞ sem hefur sérstakt umboð til að efla tjáningar- og fjölmiðlafrelsi. Þá sinnir stofnunin margvíslegum verkefnum með áherslu á vísindi, menningu og menningararf og heldur m.a. úti hinni þekktu Heimsminjaskrá.

Framkvæmd heimsmarkmiða SÞ, jafnrétti, mannréttindamiðuð nálgun, virk þátttaka ungmenna og aðgengi allra (e. inclusion) verða rauður þráður í áherslum Íslands á meðan setu í framkvæmdastjórn stendur. Ísland mun vinna að því að UNESCO sé og haldi áfram að vera áhrifarík og skilvirk stofnun á sínu sviði og vinni eftir samræmdri stefnu, skilvirkum stjórnunarháttum og í góðu samstarfi við aðrar undirstofnanir SÞ. Ísland mun einnig styðja áframhaldandi endurbótastarf og þróun UNESCO með það að leiðarljósi að byggja enn frekar upp traust starf í þeim mikilvægu málaflokkum sem stofnunin sinnir.

Utanríkisráðuneytið gerði rammasamning við UNESCO árið 2019 sem fjallar um margvíslegan stuðning Íslands og samvinnu við UNESCO á sviði þróunarsamvinnu. Studd eru verkefni á sviði menntunar, tjáningarfrelsis og öryggis fjölmiðlafólks. Eitt af stærstu verkefnum Íslands í þróunarsamvinnu hefur nýlega færst frá Háskólum SÞ yfir á vettvang UNESCO og starfa nú fjórir skólar undir merkjum stofnunarinnar sem GRÓ, Þekkingarmiðstöð þróunarsamvinnu. Þá eru fulltrúar Vigdísarstofnunar, alþjóðlegrar miðstöðvar tungumála og menningar á vettvangi UNESCO, í fjölþjóðlegum stýrihópi um áratug frumbyggjatungumála (e. International Decade of Indigenous Languages).

Framboð Íslands naut stuðnings Norðurlanda sem skipst hafa á um setu í stjórninni frá upphafi. Á stjórnartímabilinu eru fulltrúar Íslands ábyrgir fyrir samhæfingu og upplýsingamiðlun á meðal norrænna ráðuneyta og fastanefnda vegna málefnastarfs innan UNESCO.

Nánari upplýsingar á íslensku um starf UNESCO má finna á unesco.is