Ísland styður fjölmiðla í þróunarríkjum

0
712
Le Saux hjá UNESCO og Unnur Orradóttir-Ramette sendiherra

Ísland hefur gerst aðili að alþjóðaverkefni Menningarmálastofnunar Sameinuðu þjóðanna, UNESCO, um frjálsa fjölmiðlun í þróunarlöndum.  

Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra segir að um mikilvægt framlag sé að ræða sem nýtist í baráttunni við kórónuveiruna.

4 ára samningur

Samningur um fjögurra ára framlag Íslands til verkefnisins. Hann var undirritaður í París í dag, en framlag þessa árs nýtist í stuðning við fjölmiðlauppbyggingu í Afríku sem viðbragð við kórónuveirufaraldrinum. Unnur Orradóttir-Ramette, sendiherra Íslands í París, undirritaði samninginn ásamt Jean-Yves Le Saux, framkvæmdastjóra skrifstofu stefnumótunar hjá UNESCO.

Le Saux segir miklu skipta að stuðningur Íslands sé til fjögurra ára og þar af leiðandi fyrirsjáanlegur.

Guy Berger forstöðumaður stuðningsáætlunarinnar við frjálsa fjölmiðla í þróunarlöndum( IPDC (International Programme for the Development of Communication) tekur undir það.

UNESCO og Ísland„Blaðamenn hafa mikilvægu hlutverki að gegna í því að sjá almenningi fyrir áreiðanlegum upplýsingum í sterkum og óháðum fjölmiðlum.. Þetta er lykilatriði í því að vinna gegn villandi upplýsingum,” segir Guy Berger. „Við kunnum að meta allan stuðning en við kunnum sérstaklega  vel  ð meta að Ísland skuldbindur sig til margra ára.”

Fjölmiðlar eiga undir högg að sækja

„Stuðningur Íslands við þetta mikilvæga verkefni um frjálsa fjölmiðlun í þróunarlöndum kemur á tíma þegar fjölmiðlar víða um heim eiga undir högg að sækja. Framlagið samræmist vel áherslum Íslands á sviði mannréttinda og er liður í viðbrögðum Íslands við kórónuveirufaraldrinum í þróunarríkjum,“sagði Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra, í tilefni undirritunarinnar.

„Með öflugum fjölmiðlum er hægt að koma mikilvægum upplýsingum um einstaklingsbundnar sóttvarnir á framfæri. Þannig er hægt að veita aðgang að fréttum og áreiðanlegum upplýsingum um þróun faraldursins. Slíkar aðgerðir eru mikilvægar til að hamla útbreiðslu veirunnar á viðkvæmum svæðum.“

Markmið þróunarsamvinnustefnu

Stuðningurinn er í samræmi við markmið þróunarsamvinnustefnu um uppbyggingu félagslegra innviða og sterkari innviði samfélaga. IPDC veitir fjölmiðlaverkefnum í þróunarlöndum stuðning. Stuðlað er að eflingu fjölmiðlafrelsis og sjálfstæðis fjölmiðla. Hjálpað er til við uppbyggingu staðbundinna útvarps- og sjónvarpsstöðva. Auk þess er stutt við  nútímavæðingu fjölmiðla. Fjörutíu ár eru frá því að verkefnið var sett á laggirnar.  IPDC hefur nú unnið að yfir tvö þúsund verkefnum í 140 þróunarríkjum. Það er jafnframt eini fjölþjóðlegi vettvangurinn innan Sameinuðu þjóðanna þar sem stutt er við uppbyggingu fjölmiðla í þróunarríkjum.

Sem sérstofnun Sameinuðu þjóðanna er það meðal verkefna UNESCO að efla alþjóðlega samvinnu á sviði fjölmiðlafrelsis. Íslensk stjórnvöld styðja nú þegar við verkefni stofnunarinnar sem stuðlar að því að tryggja öryggi blaðamanna, í samræmi við rammasamning við stofnunina sem undirritaður var á síðasta ári.

Þá er Ísland aðili að Fjölmiðlafrelsisbandalaginu (Media Freedom Coalition), samtökum 37 ríkja sem hafa að markmiði að auka fjölmiðlafrelsi um allan heim. Ráðherrafundur þess var haldinn fyrr í vikunni.

(Byggt á frétt frá UNESCO og utanríkisráðuneytinu).