Ísland tekur að mestu þátt rafrænt

0
526
Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna
Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra ávarpar Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna

Utanríkisáðherra mun venju samkvæmt flytja ávarp fyrir Íslands hönd í umræðum þjóðarleiðtoga á  76. allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna sem nú stendur yfir. Ræða hans er á dagskrá 27. september.  Íslenskir ráðamenn taka þátt í þinginu og hliðarviðburðum með fjarfundabúnaði og myndabandsupptökum.

„Ísland hefur verið öflugur málsvari alþjóðalaga, sjálfbærrar nýtingar auðlinda og síðast en ekki síst mannréttinda og jafnréttis á vettvangi Sameinuðu þjóðanna,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra. „Þau mál verða í forgrunni hjá Íslandi á þessu allsherjarþingi ásamt aðgerðum vegna heimsfaraldursins og loftslagsbreytinga. Við höldum áfram að vera óhrædd við að tala fyrir alþjóðalögum, mannréttindunum og lýðræði eins og framganga Íslands í mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna undirstrikaði.“

Rafræn þátttaka

Í tengslum við þingið fara fram fjölmargir fundir og hliðarviðburðir sem fulltrúar Íslands munu sækja rafrænt. Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, ávarpar leiðtogafund um jafnari dreifingu bóluefna sem haldinn verður í tengslum við allsherjarþingið á morgun, 22. september. Á morgun tekur utanríkis- og þróunarmálaráðherra einnig þátt í fundi um málefni hinsegin fólks sem haldinn er á vegum ríkjahóps sem beitir sér fyrir réttindum þess á vettvangi Sameinuðu þjóðanna og Ísland tilheyrir.

Fimmtudaginn 23. september tekur forsætisráðherra þátt í leiðtogafundi um sjálfbærni matvælakerfa og mikilvægi þeirra fyrir innleiðingu heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna. Utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra tekur þá þátt í fundi bandalags um fjölþjóðasamvinnu, sem miðar að því efla fjölþjóðasamstarf og virðingu fyrir alþjóðalögum og mannréttindum.  Guðlaugur Þór ávarpar einnig ráðherrafund um orkumál 24. september, en Ísland hefur tekið virkan þátt í undirbúningi fundarins sem sérstakur málsvari sjálfbærrar orkunýtingar og jafnréttis.

(Frá utanríkisráðuneytinu).