Ísland tók þátt í fundi Öryggisráðsins um lok síðari heimsstyrjaldar

0
672
75 ár frá lokum síðari heimsstyrjaldarinnar
Skjáskot af fundi Öryggisráðsins. Mynd: Utanríkisráðuneytið.

Utanríkisráðherrar tæplega 50 ríkja tóku þátt sérstökum fjarfundi öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna í tilefni af því að sjötíu og fimm ár eru liðin frá lokum seinni heimsstyrjaldarinnar í Evrópu.

Mynd: Utanríkisráðuneytið.

Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra tók þátt í fundinum og minntist í ávarpi sínu allra þeirra sem féllu í þessum hildarleik og rifjaði upp að við stríðslok hefði lýðum verið ljóst að þjóðir heims yrðu að starfa saman með árangursríkari hætti en áður.

„Sú sýn sem lá til grundvallar stofnunar og starfsemi Sameinuðu þjóðanna og annarra tengdra alþjóðastofnanna hefur þjónað mannkyninu vel í þeirri viðleitni að tryggja frið, efnahags- og samfélagslegar framfarir, mannréttindi og lýðræði,“ sagði Guðlaugur Þór í ávarpi sínu. Hann segir að COVID-19 faraldurinn sem nú fer um heimsbyggðina sendi einmitt þessi sömu skilaboð til leiðtoga ríkja heims, um nauðsyn náinnar samvinnu.

Verðum að tryggja að fjölþjóðakerfið verði sterkara

„Það er undir okkur komið að standa af okkur þennan storm í sameiningu og tryggja að fjölþjóðakerfið, með öllum sínum kostum og göllum, komi sterkara en áður út úr þessum skakkaföllum,“ sagði Guðlaugur Þór. „Við skuldum það kynslóðinni sem fyrir 75 árum færði ómældar fórnir og sýndi á þeim tíma þá fyrirhyggju að efna til hinna Sameinuðu þjóða. En við skuldum framtíðarkynslóðum það ekki síður.“

Fundur öryggisráðsins í dag var skipulagður sem svokallaður Arria fundur, en það eru óformlegir fundir um málefni sem tengjast öryggisráðinu sem aðildarríki og ríki öryggisráðsins geta staðið fyrir en teljast ekki hluti af formlegri dagskrá ráðsins. Ríkjum gefst þannig meira svigrúm með efnisval og þátttakendur á fundunum. Fundirnir draga nafn sitt af Diego Arria, fyrrverandi fastafulltrúa Venesúela, sem fyrstu tók upp á því að skipuleggja slíka fundi í mars 1992 þegar Venesúela var með formennsku í ráðinu.

Hér má sjá útsendingu frá fundinum í dag. Ræðu ráðherra má nálgast hér.

(Frétt frá utanríkisráðuneytinu)