
5. júní 2012. Friðrik krónprins Dana afhenti fyrstu verðlaun í samkeppni Sameinuðu þjóðanna um bestu auglýsinguna til að vekja athygli á vatnsskorti við sérstaka athöfn í Kaupmannahöfn í dag á Alþjóða umhverfisdeginum.
Ítalinn Daniele Gaspari sigraði í keppninni , Drop by Drop the Future we want.
Keppnin er haldin í aðdraganda Rio + 20 ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna um Sjállfbæra þróun síðar í þesum mánuði en þar eru þau vandamál sem blasa við vegna fyrirsjáanlegs vatnsskorts í heiminum ofarlega á baugi, en loftslagsbreytingar hafa stóraukið vanda sem fyrir var.
Christian Friis Bach, ráðherra Þróunarsamvinnu í dönsku stjórninni sagði við verðlaunaafhendinguna að Rio ráðstefnan væri „tækifæri sem við mættum ekki missa af.“
„Þessar auglýsingar munu vonandi hreyfa við fólki. Takk fyrir að beita okkur þrýstingi“, sagði ráðherrann en Danir sitja nú í forsæti Evrópusambandsins.
Sigur-auglýsingin Vatnssóun drepur framtíðina, sýnir (vatns)byssu sem beint er að kornabarni.
Sumum kann að bregða í brún, segir Árni Snævarr, upplýsingafulltrúi hjá Sameinuðu þjóðunum. En því miður segir þessi mynd meira en þúsund orð.
Ísland hefur að vísu mestu ferskvatnsbirgðir allra Evrópulanda, en við skulum ekki gleyma því að mikið vatn hefur farið í að rækta innflutta kornið í brauði okkar að ekki sé talað um innfluttar kjötvörur Innfluttu matvælin koma jafnvel frá svæðum þar sem vatnsskortur er landlægur og íbúarnir njóta ekki þeirra sjálfsögðu mannréttinda að hafa aðgang að hreinu drykkjarvatni., segir Árni Snævarr.
Talið er að eftirspurn eftir hreinu vatni árið 2030 verði 40% meiri en framboð og að helmingur jarðarbúa muni búa á svæðum þar sem vatnsskortur er landlægur. Sigurauglýsingin verður birt í fjölda dagblaða sem gengið hafa í fjölmðlabandalag með Sameinuðu þjóðunum um þetta málefni. Fréttablaðið er þar í hópi með dagblöðum á borð við le Monde, Guardian, Politiken, la Stampa og El Pais.
