17.mars 2016. Danir eru hamingjusamasta þjóð í heimi, en Sviss og Ísland fylgja fast á eftir.
World Happiness Report 2016 Update, kom út í gær og eru fjögur Norðurlandanna á meðal fimm efstu og það fimmta í tíunda sæti.
Meðal áhugaverðrar niðurstaðna er að þar sem er tiltölulega lítill ójöfnuður er fólk almennt hamingjusamara.
Sömu tíu ríki skipa sér í tíu efstu sætin í á rog síðasta ár en Danir hafa skotist upp í efsta sætið og haft sætaskipti við Svisslendinga sem færast niður í annað sætið. Ísland er í þriðja sæti og Noregur í því fjórða, Finnland er fimmta og síðan koma Kanada, Holland, Nýja Sjáland, Ástralía og Svíþjóð.

Neðst af 156 ríkjum er Búrundí en þar hefur verið mikil skálmöld að undanförnu, og er landið fyrir neðan Sýrland þar sem hundruð þúsunda hafa látist í borgarastríði og milljónir flúið land undanfarin fimm ár.
„Hver einasta ríki ætti að meta hamingju íbúanna að þeirra eigin áliti og stefna að því að velsæld þeirra á leið okkar til að uppfylla Sjálfbæru þróunarmarkmiðin,“ segir Jeffrey Sachs, forstjóri Jarðar-stofnunarinnar við Columbia háskóla. „Við ættum fremur að stefna að samfélögum sem hafa velmegun, réttlæti og sjálfbærni umhverfisins að leiðarljósi í stað þess að einblína á hagvöxt.“
Í skýrslunni World Happiness Report 2016 Update er farið yfir svör fólks við spurningum um hvernig það meti líf sitt á skalanum 0 til 10. Byggt er á könnunum í 156 ríkjum á árunum 2013-2015.
Árið 2012 samþykkti Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna að 20.mars ár hvert skyldi vera Alþjóðadagur hamingjunnar.
Sjá um bakgrunn þess hér.
Mynd: Glaðir krakkar í Kulturama skólanum í Stokkhólmi. UN Photo: Eskinder Debebe.
Stúlka í Súdan brosir framan í heiminn og brugðið á leik með skilti í höfuðstöðvum SÞ.


