Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra ávarpaði í dag (22. september) leiðtogaráðstefnuna um þúsaldarmarkmið Sameinuðu þjóðanna sem haldin er við upphaf allsherjarþingsins í New York. Í ræðu sinni lagði hún ríka áherslu á bæta yrði stöðu hinna verst settu í heiminum. Tryggja yrði börnum viðunandi menntun, aðbúnað og skilyrði til vaxtar. Forsætisráðherra lagði áherslu á að jafnrétti og efling kvenna væri lykilatriði til þess að ná þúsaldarmarkmiðunum. Hún fagnaði aukinni áherslu á málefni kvenna með stofnun sérstakrar stofnunar Sameinuðu þjóðanna, UN Women, sem tekur m.a. verkefni og starf UNIFEM.
Jóhanna Sigurðardóttir í ræðustól í New York. SÞ-mynd:Aliza Eliazarov
Forsætisráðherra verður viðstödd opnun allsherjarþingsins á morgun, fimmtudag og situr hádegisverð í boði aðalframkvæmdastjóra Ban Ki-Moon. Síðdegis á morgun ´(23. september) tekur hún þátt í ráðstefnu sem haldin er á vegum Ráðs kvenna í leiðtogastöðum (Council of Women World Leaders) o.fl. þar sem forsetar Litháen og Finnlands stýra umræðum. (Fréttatilkynning frá Forsætisráðuneytinu).


