8.janúar 2014. Selina Juul og Stop Spild af Mad hreyfingin í Danmörku fengu umhverfisverðlaun danskra jafnaðarmanna í ár fyrir baráttu sína gegn sóun matvæla.
Juul hefur verið samstarfsaðili Sameinuðu þjóðanna, meðal annars í auglýsingakeppninni Think.Eat.Save – Reduce your foodprint.
Helle Thorning-Schmidt, formaður Jafnaðarmannaflokksins og forsætisráðherra Danmerkur afhenti Juul verðlaunin á fundi framkvæmdastjórnar flokksins fyrr í þessari viku.
„Verðlaunin eru mikil viðurkenning fyrir baráttuna gegn sóun matvæla, sjáflboðaliða okkar og allt starf hreyfingarinnar. Það er mikill heiður að forsætisráðherrann hafi sýnt málefninu áhuga með þessum hætti“, sagði Selina Juul.
Verðlaunin 10 þúsund dansakr bætast við verðlaunafé sem Juul fékk þegar hún hlaut Umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs á síðasta ári.

