Kaffi á tímum loftslagsbreytinga

Kaffiverksmiðja
Kaffiverksmiðja í Dilli. Mynd: Martine Perret/UNMIT

Loftslagsbreytingar. Kaffi er einn vinsælasti drykkur í heimi og ein mest selda varan. Í ár er í fyrsta sinn haldið upp á alþjóðlega kaffidaginn 1.október á vettvangi Sameinuðu þjóðanna. Markmiðið er að vekja athygli á menningarlegri, félagslegri og sögulegri þýðingu kaffis, sem og efnahagslegum og umhverfislegum áhrifum þess, fæðuöryggi og næringu.

Um 25 milljónir bændafjölskyldna, aðallega í þróunarlöndum, framleiða um 80% af kaffi heimsins. Brasilía, Víetnam og Kólumbía eru leiðandi í framleiðslu á heimsvísu, en Evrópusambandið og Bandaríkin eru stærstu innflutnings- og neyslumarkaðirnir.

António Guterres þiggur bolla hjá kaffibændum í Houaphanh í Laos.
António Guterres þiggur bolla hjá kaffibændum í Houaphanh í Laos. Mynd: UN Photo/Laura Gill

Kaffi skilar efnahagslegum ávinningi á öllum stigum alþjóðlegrar virðiskeðju og leggur mikið af mörkum til hagkerfa bæði útflutnings- og innflutningslanda, auk þess að styðja við heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun.

Efnahagslegt mikilvægi

Kaffi er einn vinsælasti drykkur í heimi og er meðal mest seldu hrávara á heimsvísu. Fyrir mörg lágtekjulönd er kaffiútflutningur mikilvæg tekjulind sem skapar gjaldeyrisforða sem er nauðsynlegur til að tryggja aðgang að alþjóðlegum mörkuðum fyrir innflutning á vörum og þjónustu.

Kaffiuppskera í Houaphanh héraði í Laos.
Kaffiuppskera í Houaphanh héraði í Laos. Mynd: UN Photo/Laura Gill

Í júlí 2026 jókst heimsútflutningur á öllum tegundum kaffis um 3,3% samanborið júlí 2025. Kaffi tryggir lífsviðurværi milljóna smábænda í fjórum heimsálfum. En skilyrðin sem gera kaffiræktun mögulega – rétt hitastig, áreiðanleg úrkoma, frjósamur jarðvegur – eru að breytast á þann hátt sem ekki er hægt að hunsa.

Loftslagsnæm ræktun

Kaffi, sérstaklega Arabica-afbrigðið, þrífst í svölu hitabeltisloftslagi í mikilli hæð, en þessum ræktunarskilyrðum stafar í auknum mæli ógn af umhverfisbreytingum. Öfgar í hitastigi, óregluleg úrkoma, þurrkar, of mikil rigning, meindýr og plöntusjúkdómar geta haft áhrif á uppskeru, gæði, vinnuaflsþörf og verð. Matvæla- og landbúnaðarstofnun Sameinuðu þjóðanna (FAO) greinir frá því að alþjóðlegir drykkjarvörumarkaðir séu enn berskjaldaðir fyrir veðuráföllum, framboðsskorti, meindýrafaraldri og truflunum í flutningum, með afleiðingum sem finnast ójafnt eftir virðiskeðjunum.

Kaffidrykkja á allsherjarþinginu.
Kaffidrykkja á allsherjarþinginu. Mynd:: UN Photo/Mark Garten

Til að takast á við þessar áskoranir þarf verulega umbreytingu á kaffiræktun. Loftslagsþolinn landbúnaðarskógrækt, jarðvegs- og vatnsvernd, fjölbreyttari ræktun, skógarvernd, bætt plöntunarefni og tímanlegar loftslagsupplýsingar geta hjálpað bændum að aðlagast og verða seigari. Slíkar aðferðir verða að vera sniðnar að staðbundnu landslagi og þörfum bændasamfélaga.

Þar sem kaffi styður aðallega við fæðuöryggi með tekjum og atvinnu er breytt loftslag alvarleg ógn. Þegar bændafjölskyldur hafa stöðugar og fullnægjandi tekjur eru þær betur í stakk búnar til að kaupa næringarríkan mat, fjárfesta í búum sínum og standast efnahagsleg eða loftslagsáföll. Að gera kaffiræktun afkastameiri og arðbærari er í sjálfu sér einn öflugasti varnarveggurinn gegn loftslagsáhættu.