Katla hefur verið valin á sérstakan lista Sameinuðu þjóðanna yfir framúrskarandi jarðvanga í heiminum. UNESCO, Mennta-, menningar- og vísindastofnun Sameinuðu þjóðanna valdi níu staði af sextán sem sóttu um á lista yfir jarðvanga eða Geoparks. Í frétt á heimasíðu Sameinuðu þjóðanna í New York segir að jarðvangurinn Katla hýsi hinn víðfræga Eyjafjallajökul sem hafi sett flugumferð í heiminum á annan endann. Kötlusvæðið er sagt einkennast af jökulsorfnu landslagi og eldvirkni sem hafi áhrif á búsetu og því gegni jarðfræði tengd ferðamennska l(geotourism) lykilhlutverki í sjálfbærri þróun.
UNESCO, Mennta, vísinda og menningar og stofnun Sameinuðu þjóðanna valdi níu staði af sextán sem sóttust eftir að komast á lista yfir jarðvanga eða Geoparks. Um er að ræða staði sem búa yfir einstöku mikilvægi í mennta- og vísindalegu tilliti, eru einstakir í sinni röð eða búa yfir sérstakri náttúrufegurð. Listanum er ætlað að efla samvinnu í stýringu á nýtingu jarðfræðilegrar arfleiðrar heimsins. Auk Íslands voru jarðvangar í sjö löndum valdir á listann.
Nú eru áttatíu og sjö staðir í 27 löndum á listanum.
Katla Jarðvangur (á ensku: Katla Geopark) var formlega stofnaðu 19. nóvember 2010. Jarðvangar eiga sér einungis rúmlega áratugasögu erlendis og nú hefur Ísland bæst í hópinn. Markmiðið með starfsemi jarðvangsins er m.a. að vernda og nýta jarðminjar svæðisins í þágu sjálfbærrar þróunar og eflingu byggðarinnar. Þróuð verði jarðfræðitengd ferðamennska á svæðinu (Geotourism) sem byggi á fræðslu um jarðminjar, samspil manns og náttúru, og útivist.
Jarðvangurinn Katla tekur til sveitarfélaganna þriggja; Rangárþings eystra, Mýrdalshrepps og Skaftárhrepps. Sótt var um aðild að Evrópska samstarfsnetinu um jarðvanga í nóvember 2010, að því er fram kemur á heimasíðu Kötlu jarðvangs (www.katlageopark.is).
