Ný skýrsla Sameinuðu þjóðanna sýnir fram á að bæði ríkisstjórnir og fyrirtæki um allan heim hafa tekið afgerandi skref í þá átt að hraða umbreytingum í átt til grænna hagkerfis þar sem áherslan er á kolefnasnauða, skilvirka og græna framtíð.
Skýrslan er á vegum Umhverfisáætlunar SÞ (UNEP) og ber heitið „Í átt að grænu hagkerfi: Vegvísir fyrir sjálfbæra þróun og upprætingu fátæktar“. Í yfirlýsingu um skýrsluna segir Ban Ki-moon, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna: “Heimurinn horfir fram á veginn og Rio +20 ráðstefnunnar um sjálfbæra þróun í júní á næsta ári. UNEP skýrslan um græna hagkerfið sýnir fram á að það er einber goðsaga að valið standi á milli efnahagsins eða umhverfisins.”
Skýrslan sem er afrakstur þriggja ára starfs sem hundruð sérfræðinga komu að, staðfestir að fjárfesting sem nemur tveimur prósentum af samanlagðri þjóðarframleiðslu heimsins í 10 lykil greinum nægir til að rífstarta grænu hagkerfi sem kæmi í stað “brúns” óskilvirks og mengandi hagkerfis.
• Í skýrslunni eru færð rök fyrir því að umbreytingin myndi skila hagkerfi heimsins álíka hagvexti, jafnvel hærri, en þeim sem spáð er við núverandi hagrænar aðstæður.
• Þessi vöxtur yrði hins vegar án þeirra áfalla, skorts og kreppna sem einkenna í sívaxandi mæli núverandi kolefnaríka “brúna” hagkerfið þar sem sífellt er gengið á auðlindir.
•Auk meiri hagvaxtar myndi umbreytingin í græna hagkerfið skila sér í auknum tekjum á mann en núverandi hagmódel og minnka losun gróðurhúsalofttegunda um fimmtíu prósent miðað við 2050 og óbreytt ástand.
• Í skýrslunni um græna hagkerfið er viðurkennt að til skamms tíma litið myndu störf tapast, til dæmis í fiskveiðum, við umbreytinguna yfir í sjálfbærni.
•Á hinn bóginn myndu “nýjum og almennilegu störfum” fjölga í ýmsum geirum, allt frá endurnýjanlegri orku til sjálfbærs landbúnaðar sem myndu vega þetta upp.
Kína hefur tekið forystu í fjárfestingum í endurnýjanlegri orku í heiminum og skotið Spáni aftur fyrir sig. Fjárfesting nam 49 millljörðum Bandaríkjadala 2010. Í allt hefur Kína skuldbundið sig til að verja 468 millljörðum á næstu fimm árum til lykil-greina á borð við endurnýjanlega orku, hreina tækni og nýtingu urgings. Þetta er tvöföldun miðað við undanfarin fimm ár.
