
21. október. Evrópuþingið hefur ákveðið að veita Kongólska lækninum Denis Mukwege Sakharov-mannréttindaverðlaunin.
Mukwege er stundum kallaður “maðurinn sem gerir við konur” en hann hefur rekið sjúkrahús í austurhluta Lýðstjórnarlýðveldisins Kongó þar sem talið er að á hverri mínútu hafi einni konu verið nauðgað þegar átök stóðu sem hæst.
Mukwege hefur oft skorið tíu konur upp á dag, svo algengt hefur kynferðislegt ofbeldi gegn konum verið í austurhluta Kongó. Talið era ð tugir þúsunda kvenna hafi notið aðhlynningar á sjúkrahúsi hans í borginni Bukavu, ekki aðeins í form heilsugæslu, heldur einnig sálfræðilega aðstoð. “Konur í Kongó hafa sama rétt til verndar og allar aðrar konur á þessari jörð”, sagði Mukwege þegar hann ávarpaði Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna á síðasta ári.
Mukwege hefur lengi þótt líklegur til að fá friðarverðlaun Nóbels. Verðlaunin, 50 þúsund evrur verða afhent við hátíðlega athöfn í Strasbourg 26.nóvember. Þau eru kennd við Andréi Sakharov, kjarneðlisfræðing og mannréttindafrömuð í Sovétríkjunum sálugu.
