Konur eru ekki frávik frá reglu karlmanna

0
656
Guterres jafnrétti kynjanna
Jafnvægi er á milli karla og kvenna í æðstu stjórn SÞ frá síðustu áramótum að telja. Á myndinni sver Ghada Fathy Ismail Waly embættiseið sem forstjóri Eiturlyfja- og glæpaskrifstofu SÞ (UNODC). António Guterres er til vinstri. 20.febrúar 2020. UN Photo/Manuel Elias

António Guterres aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna hefur heitið því að beita persónulegum áhrifum sínum í þágu jafnréttis kynjanna. Þar á meðal til höfuðs lögbundinni kynferðislegri misnunun og fyrir þátttöku kvenna í friðarviðleitni. Jafnramt vill hann að tekið verði tillit til ógreiddrar vinnu á heimilum í reikningi þjóðarframleiðslu.

Aðalframkvæmdastjórinn flutti ræðu um þemað „Konur og vald” í the New School-háskólanum í New York. Guterres á tvö ár eftir í embætti og sagðist munu nota þann tíma til að „vekja athygli á og vinna í þágu jafnréttis kynjanna í öllu okkar starfi.”

Guterres sagðist munu persónulega hafa samband við ríkisstjórnir sem bera ábyrgð á lagasetningu sem felur í sér mismunun til að tala máli breytinga.

Konur í friðarferlum

Einnig kvaðst hann munu beita áhrifum Sameinuðu þjóðanna í því skyni að konur hafi jafn marga fulltrúa og karlar í friðarferlum.

„Þá mun ég beita mér fyrir því að þjóðarframleiðsla taki tillit til velfarnaðar og sjálfbærni og að ógreidd heimilisstörf verði metin að verðleikum,” sagði Guterres.

„Ég er staðráðinn í að binda enda á þá hugsun að karlmaðurinn sé skapalón alls innan Sameinuðu þjóðanna. Við erum samtök sem byggjum mjög á tölfræði. Það er þýðingarmikið að að gengið sé útfrá því að karlar séu ekki reglan og konur frávik.”

Guterres lauk ræðu sinni með því að segja: „Jafnrétti kynjanna snýst um völd; völd sem karlar hafa notið einir um árþúsundir. 21.öldin á að vera öld jafnréttis kvenna. Við skulum öll leggja okkar lóð á vogarskálarnar.“