A-Ö Efnisyfirlit

Ísrael/Palestína: Allsherjarþingið samþykkir tillögu um tveggja ríkja lausn

Atvkæðatölur í atkvæðagreiðslunni.
Atvkæðatölur í atkvæðagreiðslunni. Mynd: UN Photo/Loey Felipe

Fagnaðarlæti brutust út í þingsal þegar Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna samþykkti föstudaginn 12.september ályktun um friðsamlega lausn deilna Palestínumanna og Ísraela með stofnun tveggja ríkja.

Samþykktin, svokölluð New York-yfirlýsingin, er afrakstur alþjóðlegrar ráðstefnu sem haldin var í höfuðstöðvum Sameinuðu þjóðanna í júlí. Ráðstefnan hefst að nýju síðar í september undir forystu Frakklands og Sádi Arabíu.

142 af 193 aðildarríkjum Sameinuðu þjóðanna greiddu atkvæði með tillögu um stuðning við yfirlýsinguna.

Ísrael, ásamt níu öðrum ríkjum greiddi atkvæði gegn tillögunni. Þau voru Argentína, Bandaríkin, Mikrónesía, Nauru, Palau, Papúa-Nýja Gínea, Paragvæ, Tonga og Ungverjaland. Tólf ríki sátu hjá.  

Auk Ísraels greiddu níu ríki atkvæði gegn tillögunni.
Auk Ísraels greiddu níu ríki atkvæði gegn tillögunni.

„Vegvísir fyrir framtíðina“

 Jérôme Bonnafont fastafulltrúi Frakklands sagði að New York-yfirlýsingin væri “vegvísir að tveggja ríkja lausn.”

Í henni felst tafarlaust vopnahlé á Gasasvæðinu, lausn allra gísla og stofnun lífvænlegs og fullvalda palestínsks ríkis.

Hamas-samtökin yrðu afvopnuð, stjórnmálsambandi komið á á milli Ísraels og Araba-ríkja, auk þess sem gefnar yrðu öryggis-tryggingar.

Danny Danon fastafulltrúi Ísraels sagði yfirlýsinguna „einhliða og henni yrði ekki minnst sem skref í átt til friðar heldur aðeins innihaldslausrar aðgerðar sem græfi undan trúverðugleika Allsherjarþingsins.”