11.febrúar 2015. Ríki heims hófu nýja lotu samningaviðræðna sem miða að því að ljúka nýjum Loftslagssáttmála á sunnudag í Genf.

„Vonandi hljómar það ekki oflátungslega, en örlög jarðarinnar eru í veði“, sagði Fabius. „Yfirborð sjávar hækkar, hafið súrnar, fólksflutningum er hrundið af stað, þurrkar eru skaðlegri en nokkru sinni fyrr.
„Og þá er það málefni sem ekki er rætt mikið um: áhrifin á öryggi. Öryggi dvínar eftir því sem loftslagsbreytingar aukast af völdum fólksflutning og átaka um auðlindir, hvort heldur sem er olíu eða vatn.“
Fundurinn í Genf er fyrsta hrina viðræðna sem miða að því að ná samkomulagi um að hækkun hitastigs verði ekki meir en 2 gráður á jörðinni miðað við fyrir daga iðnbyltingarinnar.
Eftir fyrstu tvo daga viðræðna hafði samningsuppkast tví- eða þrefaldast að blaðsíðutali, en það var 38 síður þegar upp var staðið á Loftslagsráðstefnunni í Lima í Perú í desember. Mörg atriða í uppkastinu eru innan sviga eða innihalda valkosti og jafnvel undirvalkosti sem þýðir að fullnaðarákvarðanir liggja ekki fyrir.
„Ég myndi segja að uppkastið nái sennilega 100 síðum eða kannski svolítið meira,“ segir Christiana Figueres, forstjóri Loftslagsstofnunar Sameinuðu þjóðanna (UNFCCC).
Figueres segir að engu hafi verið teflt í tvísýnu enn, auk þess sem endurtekningar kunni að leynast í textanum, en viðurkennir að verkefni næstu samningalotu í Bonn í Þýskalandi í júní hafi stækkað.
Myndir: UNFCCC, UN.org

