Lýst eftir ungleiðtogum Heimsmarkmiðanna

0
702
Ungleiðtogar Heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna
Edda Hamar var í hópi fyrstu ungleiðtoganna sem Sameinuðu þjóðirnar völdu.

Sameinuðu þjóðirnar leita nú að ungleiðtogum í þágu Heimsmarkmiðanna um Sjálfbæra þróun fyrir 2020.

Skrifstofa erindreka ungmenna hjá Sameinuðu þjóðunum leitar nú að 17 framúrskarandi einstaklingum til að skipa hóp ungra leiðtoga heimsmarmiða samtakanna. Markmiðið er að viðurkenna og virkja ungt fólk sem hefur tekið af skarið í baráttunni gegn fátækt, loftslagsbreytingum og minnkun ójöfnuðar, svo eitthvað sé nefnt af Heimsmarkmiðunum 17.

Auglýst eftir ungleiðtogum Heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna.
Auglýst eftir ungleiðtogum Heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna.

Valið á ungleiðtogunum er til marks um þá fullvissu að ungt fólk sé hreyfiafl til góðs í heiminum og hafi hugmyndaflug, kjark og hugvit til þess að finna varanlegar lausnir til að ná Heimsmarkmiðunum um sjálfbæra þróun.

Edda Hamar

Ungu leiðtogarnir hafa fram að þessu verið valdir úr ýmsum greinum, frá matvælaframleiðslu til tískuiðnaðar og er ætlað að starfa með Sameinuðu þjóðunum að virkja ungt fólk í þágu Heimsmarkmiðanna. Edda Hamar, ung íslensk kona búsett í Ástralíu, var í hópi fyrstu ungleiðtoganna sem valdir voru.

Ungleiðtogarnir munu starfa með Sameinuðu þjóðunum sem hópur en einnig halda áfram á þeim vettvangi sem þeir hafa unnið að fram að þessu í þágu Heimsmarkmiðanna.

Árangur, áhrif, ráðvendni

Við val hópsins eru eftirtalin atriðið tekin með í reikninginn :

• Árangur – Áþreifanlegur árangur í að vinna að framgangi þýðingarmestu atriði heimsmarkmiðanna.
• Áhrif – Persónuleg áhrif á sínu sviði og viðkomandi sé kunn(ur) fyrir skapandi forystu án mismununar.
• Ráðvendni – Að hafa sýnt af sér heiðarleika og trúfestu við Heimsmarkmiðin og gildi Sameinuðu þjóðanna. Sjá nánar hér .

Umsóknarfrestur er til 22.febrúar 2020.

Sækið um hér!