
Sameinuðu þjóðirnar og Nelson Mandela stofnunin hafa tekið höndum saman um að skora á alla jarðarbúa að verja 67 mínútum af tíma sínum í þágu annara – eina mínútu fyrir hvert ár sem Nelson Mandela starfaði í þágu mannkynsins.
Skorað er á fólk að fylgja fordæmi Nelson Mandela á afmælidegi hans mánudaginn 18. júlí en Sameinuðu þjóðirnar halda nú daginn hátíðlegan í annað skipti sem Alþjóðlega Nelson Mandela daginn.
“Nelson Mandela sagði eitt sinn sjálfur: “Við getum breytt heiminum og gert hann að betri stað. Hver og einn getur lagt sitt af mörkum til breytinga,” segir Ban Ki-moon, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna í ávarpi í tilefni dagsins. “Við skulum hlíta þessum boðskap. Kennum barni. Gefum hungruðum mat. Gerumst sjálfboðaliðar á sjúkrahúsi í nágrenninu eða félagsmiðstöð. Gerum heiminn að betri stað.”
Aðalmarkmið Mandela dagsins er að hvetja einstaklinga til að leggja sitt lóð á vogarskálarnar til að bæta heiminn og skapa á þann fjöldahreyfingu í þágu hins góða. Gerum hvern dag að Mandela degi!
Sjá nokkur dæmi um það sem hægt er að gera:
• Eignastu nýjan vin. Vingastu við einhvern sem hefur ólíkan menningarlegan bakgrunn. Gagnkvæmur skilningur er nauðsynlegur til að brjóta á bak aftur umburðarleysi og útlendingahatur.
• Lestu fyrir einhvern sem ekki getur það sjálfur. Heimsæktu blindraheimili og opnaðu heiminn upp á gátt á þann hátt fyrir þá sem ekki sjá.
• Leggðu dýraheimili lið. Heimilislausir hundar þurfa göngutúr og svolitla ást.
• Hjálpaðu einhverjum að finna starf. Hjálpaðu þeim að búa til og prent ferilskrá eða að efla viðtalshæfni sína
• Margt fólk sem berst við banvænan sjúkdóm hefur engan að tala við. Gefðu þér tíma til að spjalla og veittu sólskini inn í líf þess.
• Hjálpaðu einhverjum sem ekki hefur ráð á því til að láta kanna sjónina eða gera við tennurnar.
• Gefðu lömuðum hjólastól eða blindum hund.
• Keyptu nokkur teppi eða teppi sem þú notar ekki lengur og gefðu þurfandi.
Sjá nánar: http://www.mandeladay.com/
