Mannfallið á Gasa og hlutfall kvenna og barna óbreytt að sögn SÞ

0
14
Khan Younis á Gasasvæðinu 10.apríl 2024. Mynd: UNOCHA/Themba Linden Widespread destruction in Khan Younis. A UN team (OCHA, UNRWA, WHO, WFP, UNMAS, and UNFPA) visited Khan Younis on 10 April following the withdrawal of Israeli troops from that area. They report profound destruction: every building the team visited and most of the buildings observed were damaged, and paved roads had been reduced to dirt tracks. Streets and public spaces are also marred with unexploded ordnance, posing severe risks to civilians. The team recorded unexploded 1,000-pound bombs lying on main intersections and inside schools. Returnees and a handful of people who remained through the fighting told the team that there they faced dire shortages of food and water, compounded by the loss of critical healthcare services due to the destruction of Nasser and Al Amal hospitals. © UNOCHA/Themba Linden
Khan Younis á Gasasvæðinu 10.apríl 2024. Mynd: UNOCHA/Themba Linden

Gasasvæðið. Mannfall. Fjöldi látinna í átökunum á Gasasvæðinu er enn rúmlega 35 þúsund að sögn talsmanns Sameinuðu þjóðanna, þrátt fyrir misvísandi tölur frá heilbrigðisráðuneyti Hamas. Ísraelar höfðu gripið á lofti nýjar tölur þaðan sem virtust benda til að mannfallið væri minna en talið hefði verið.

Farhan Haq talsmaður Sameinuðu þjóðanna segir skýringuna þá að heilbrigðisráðuneytið hefði birt tölur yfir þá sem hefði tekist að nafngreina, eða rétt tæplega 25 þúsund manns. Tíu þúsund til viðbótar hefðu ekki endanlega verið nafngreindir, margir eru í fjöldagröfum og aðrir grafnir undir rústum. Heildartalan; yfir 35 þúsund látnir, hefði því ekki breyst.

Khan Younis hefur verið lögð í rúst.
Khan Younis hefur verið lögð í rúst. Mynd:
© UNOCHA/Themba Linden

Sameinuðu þjóðirnar hafa frá upphafi hinnar banvænu árásar Hanas á Ísrael 7.október notað tölur um mannfall frá heilbrigðisráðuneyti Gasasvæðisins, en bent á að ókleift væri að staðfesta þær

Tíu þúsund vantaldir

 Í síðustu viku greindi heilbrigðisráðuneytið frá fjölda þeirra sem tekist hefði að nafngreina og lýsa formlega látna. Þetta var hins vegar ekki heildartala og ósamanburðarhæf við fyrri tölur.

 Sameinuðu þjóðirnar segja að hvorki heildarfjöldinn né hlutfall barna og kvenna hafi lækkað. Miðað við aldurs- og kyndreifingu þeirra sem hafa verið nafngreindir má gera ráð fyrir að hlutfall kvenna og barna sé enn um 60%.

Vera kann að hlutfall kvenna og barna sé hærra en ætlað er sökum þess að karlar eru líklegri til að vera utandyra á meðan konur og börn kunna að hafa í ríkari mæli grafist í rústum húsa. Khan Younis á Gasasvæðinu. Mynd: UNOCHA/Themba LindenWidespread destruction in Khan Younis. A UN team (OCHA, UNRWA, WHO, WFP, UNMAS, and UNFPA) visited Khan Younis on 10 April following the withdrawal of Israeli troops from that area. They report profound destruction: every building the team visited and most of the buildings observed were damaged, and paved roads had been reduced to dirt tracks. Streets and public spaces are also marred with unexploded ordnance, posing severe risks to civilians. The team recorded unexploded 1,000-pound bombs lying on main intersections and inside schools. Returnees and a handful of people who remained through the fighting told the team that there they faced dire shortages of food and water, compounded by the loss of critical healthcare services due to the destruction of Nasser and Al Amal hospitals. © UNOCHA/Themba Linden
Vera kann að hlutfall kvenna og barna sé hærra en ætlað er sökum þess að karlar eru líklegri til að vera utandyra á meðan konur og börn kunna að hafa í ríkari mæli grafist í rústum húsa. Khan Younis á Gasasvæðinu. Mynd: UNOCHA/Themba Linden

Hlutfall kvenna og barna kann þó að vera hærra

Christian Lindmeier talsmaður Alþjóða heilbrigðismálastofnunarinnar (WHO) benti á á blaðamannfundi í Genf að hlutfall kvenna og barna sem grafist hefðu undir hrundum húsum væri hugsanlega hærra því þau væru oftar heima við á meðan karlarnir færu út að leita matar og lífsviðurværis fyrir fjölskyldur.

Loks var skýrt frá því að starfsmaður öryggismálsdeildar Sameinuðu þjóðanna hefði drepinn og annar særður þegar skotið var á bíl hans á leið frá Rafah til Khan Younis á Gasasvæðinu í gær.

UNRWA, Palestínu-flóttamannahjálpin, telur að 450 þúsund Palestínumenn, sem flúið höfðu til borgarinnar Rafah, hafi nú orðið að flýja annað vegna árása Ísraelshers.

Sjá einnig hér