Samskiptamiðlar. Tjáningarfrelsi. Hatursorðræða.
Volker Türk mannréttindastjóri Sameinuðu þjóðanna hefur varað við því að það felist skerðing á tjáningarfrelsi í því að leyfa hatursorðræðu að þrífast á samskiptamiðlum. Miðlunum beri skylda til að hafa taumhald á innihaldi.
Türk brást við ákvörðun Meta, eiganda Facebook, um að hætta að staðreyna innihald Facebook í Bandaríkjunum með yfirlýsingu.
„Að leyfa hatursorðræðu og skaðlegt efni á netinu hefur áhrif um víða veröld. Að hafa stjórn á innihaldi felur ekki í sér ritskoðun.”
Tjáningarfrelsi: Mannréttindi í öndvegi
Í lengri pistil á LinkedIn netmiðlinum um sama efni nefndi Türk sérstaklega að þegar slíkri stjórn sé jafnað við ritskoðun gleymist að á stjórnlausum vettvangi „sé þaggað niður í sumu fólki, einkum þeim sem oft og tíðum eru hliðsettir.“
Mannréttindastjórinn ítrekaði að hann myndi eftir sem áður hvetja til ábyrgðar og stjórnunar á stafrænum vettvangi með virðingu fyrir mannréttindum að leiðarljósi. „Slíkt tryggir opinbera umræðu, eflir traust og verndar virðingu allra.“
Alheims-samskiptadeild Sameinuðu þjóðanna (the UN Department of Global Communications (DCG)) hefur unnið að því að berjast gegn upplýsingaóreiðu og rangfærslum á netinu. Þar á meðal hefur deildin unnið að þróun siðareglna í upplýsingamálum (UN Global Principles for Information Integrity)
