Árásir Bandaríkjahers á báta meintra eiturlyfjasmyglara á Karíbahafi og Kyrrhafi eru brot á alþjóðlegum mannúðarlögum að mati mannréttindastjóra Sameinuðu þjóðanna.
„Rúmlega sextíu hafa verið drepnir að sögn í áframhaldandi árásum Bandaríkjahers. Engar réttlætingu er að finna fyrir árásuinum í alþjóðlögum,” sagði Volker Türk mannréttindastjóri Sameinuðu þjóðanna í yfirlýsingu.
„Þessar árásir og vaxandi mannfallið eru óástættanlegar. Bandaríkjunum ber að stöðva þessar árásir. Þeim ber að grípa til allra nauðsynlegra aðgerða til að hindra aftöku fólks án dóms og laga, án tillits til ásakana á hendur þeim um glæpsamlegt atferli.“
Eingöngu síðasta úrræði
Bandaríkin halda því fram að þessar aðgerðir séu nauðsynlegur hluti varna gegn eiturlyfjasmygli og hryðjverkum og eigi sér stoð í alþjóðlegum mannúðarlögum.
„Það hefur löngum verið sátt um það á milli ríkja að varnir gegn eiturlyfjasmygli yfir landamæri er lögreglumál. Banvænt afl ber eingöngu að nota af vandvirkni eins og kveðið er á um í alþjóðlegum mannnúðarlögum,” sagði Volker Türk mannréttindastjóri Sameinuðu þjóðanna.
„Samkvæmt alþjóðlegum mannúðarlögum ber eingöngu að nota banvænt afl sem síðasta úrræði gegn eisntaklingum sem stefna lífi í hættu.”
