A-Ö Efnisyfirlit

Grafið undan mannréttindaforkólfum í Svíþjóð

Stokkhólmur, höfuðborg Svíþjóðar.
Stokkhólmur, höfuðborg Svíþjóðar. Mynd: Raphael Andres/Unsplash

Mannréttindi. Mannréttindafrömuðir í Svíþjóð upplifa hægfara og stigvaxandi skerðingu á mannréttindum sínum aö sögn sérfræðings Sameinuðu þjóðanna.

„Ég hef áhyggjur af fréttum af hótunum, hatursorðræðu, fordæmingu og áreitni gegn mannréttindafólki og af vaxandi takmörkunum á tjáningarfrelsi þess og rétti til friðsamlegra funda og félagafrelsis,“ sagði Mary Lawlor, sérstakur erindreki Mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna um stöðu mannréttindafólks.

Undanfarin ár hefur staða forkólfa í mannréttindamálum í Svíþjóð versnað. Það hefur verið þaggað niður í því, því hótað eða það fordæmt vegna baráttustarfa sinna eða fyrir að fjalla um mannréttindi. Borgarasamtök hafa staðið frammi fyrir auknum skrifræðiskröfum á sama tíma og fjármagn til mannréttindastarfs hefur minnkað.

Mary Lawlor sérstakur erindreki Mannréttindaráðsins.
Mary Lawlor sérstakur erindreki Mannréttindaráðsins. Mynd: UN Photo/Evan Schneider

Stimplaðir hugsanlegir hryðjuverkamenn

Umhverfisverndarsinnar og loftslagsaðgerðasinnar sem taka þátt í mótmælum og borgaralegri óhlýðni eru sagðir eiga í auknum mæli málsókn yfir höfði sér og hafa oft verið stimplaðir sem „hugsanlegir hryðjuverkamenn“ eða „glæpamenn“. Þar að auki var aðgerðasinnum úr röðum stúdenta og blaðamönnum sem tjáðu sig um eða reyndu að fjalla um réttindi palestínsku þjóðarinnar að sögn stöðvaðir eða þeim hótað. Einnig er sagt að það verði sífellt erfiðara að berjast fyrir réttindum hinsegin+ fólks eða fólks með fötlun.

Minnihlutahópar

Sérstaki erindrekinn lýsti yfir áhyggjum af aukningu neikvæðrar umræðu um þjóðernis- eða trúarlega minnihlutahópa og þeim neikvæðu áhrifum sem það hefði á baráttufólk fyrir réttindum minnihlutahópa. „Það er oft fordæmt og skortir nauðsynleg úrræði til að sinna starfi sínu, á sama tíma og það upplifir sig útilokað og að ekki sé hlustað á það,“ sagði Lawlor.

„Mannréttindafólk í Svíþjóð fær ekki jafn mikinn stuðning og áður,“ sagði hún. „Því ætti að vera gert kleift að nýta mannréttindi sín með frjálsum hætti og berjast fyrir réttindum annarra án hindrana eða ótta við hefndaraðgerðir.“

Sérstaki erindrekinn hvatti ríkisstjórnina til að bregðast við óhróðursherferðum og fordæmingu á mannréttindafólki, úthluta nægilegu fjármagni til starfsemi þess og taka það með virkum hætti inn í ákvarðanatökuferli.

„Það er ekki of seint að snúa þessari þróun við,“ sagði Lawlor. „Svíþjóð ber ábyrgð á að skapa nauðsynleg skilyrði fyrir mannréttindafólk til að njóta réttinda sinna og sinna lögmætu starfi sínu.“