Noregur hefur tilkynnt um sex nýja samninga við norsk hjálparsamtök um mannúðaraðstoð. Alls mun norska ríkið veita þessum samtökum andvirði tæpra 24 milljarða íslenskra króna (1.9 milljarðar norskra króna) á ári næstu fimm árin (2025-2029). Norsk hjálparsamtök hafa orðið að draga saman seglin undanfarnar vikur vegna niðurskurðar mannúðaraðstoðar Bandaríkjanna.
Alls mun Noregur veita nærri 120 milljörðum til samtakanna fram til 2029. Markmiðið með samningunum er að tryggja skjóta, sveigjanlega og markvissa neyðaraðstoð nú þegar þörf fyrir mannúðaðstoð fer vaxandi og efnahagsleg óvissa sömuleiðis. Sameinuðu þjóðirnar telja að 300 milljónir manna í heiminum þurfi á mannúðaraðstoð að halda á þessu ári, 2025.
Aukinn fyrirsjáanleiki
Norska ríkistjórnin segist vonast til að fimm ára samningarnir muni auka fyrirsjáanleika í starfi hjálparsamtakanna, og auka skilvirkni.
Norsku mannúðarsamtökin eru Norska flóttamannaráðið (NRC), Norcap, Hjálparstofnun norsku kirkjunnar, Norski Rauði krossinn, Norska alþýðuhjálpin og Barnaheill í Noregi. Åsmund Aukrust þróunarsamvinnuráðherra sagði að þessi samtök hefðu orðið fyrir valinu því þau gætu brugðist hratt við neyðarástandi. Þau hefðu einnig starfsemi á átakasvæðum þar sem þörfin væri mest.
HIV/Alnæmi sjúklingur í Mósambík. Niðurskurður á aðstoð Bandaríkjanna kemur hart niður á baráttu gegn HIV og alnæmi verkefnum. Mynd: UN Photo/Eskinder Debebe
Noregur ætlar að styrkja stöðu sína
„Í dag viljum við sýna fram á að hægt er að reiða sig á fjárveitingar Noregs og að við stígum fram þegar nauðsyn krefur,” sagði Åsmund Aukrust. „Það er hagur Noregs að leggja sín lóð á vogarskálarnar í þágu stöðugleika í heiminum.”
Í samvinnu við norsk samtök styður Noregur mannúðarstarf í um 40 ríkjum.
„Þessi samtök hafa þýðingarmiklu hlutverki að gegna í að efla alþjóðalög, þar á meðal alþjóðleg mannúðarlög á hamfara- og átakasvæðum. Þessi grundvallarsjónarmið og reglur eiga undir högg að sækja og eru brotin víða um heim. Noregur mun standa fast gegn því,“ sagði Aukrust.
Norsk samtök fengu mikið bandarískt fé
Fyrr í þessum mánuði neyddist Norska flóttamannaráðið til þess í fyrsta skipti í sögunni að stöðva mannúðarstarf í 20 ríkjum, sem hafði notið fjárhagslegs stuðnings Bandaríkjanna.
„Þessar dramatísku ákvarðanir voru teknar vegna stöðvunar, að hluta til eða að öllu leyti á fjárstuðningi Bandaríkjanna við mannúðarstarf okkar,“ sagði Norska flóttamannaráðið í yfirlýsingu 10.febrúar.
Jan Egeland forstjóri Norska flóttamannaráðsins segir að nýju fjárveitingarnar nemi um 10% af útgjöldum þess og auðveldi ráðinu að halda áfram stuðningi við tíu milljónir manna í 32 ríkjum.
