Mansal er þrældómur nútímans

0
617

 

human trafficking2
18. október 2013. Mansal er þrælaverslun okkar tíma.

Í mansali felst alvarlegt mannréttindabrot. Það tíðkast um allan heim og í mörgum ríkjum sem ýmist eru upphafsríki mansalsins, millilending eða áfangastaður. Evrópudagur gegn mansali er haldinn í dag 18.október í sjöunda skipti í því skyni að vekja að vekja athygli á og berjast geng mansali.
Cecilia Malmström, sænskur fulltrúi í framkvæmdastjórn Evróusambandsins segir að jafnvel þótt þrælahald hafi verið afnumið að nafninu til fyrir löngu, sæti hundruð þúsunda manna enn mansali til og innan ríkja Evrópusambandsins. „Konur og karlar, drengir og stúlkur sem standa höllum fæti í samfélaginu sæta mansali fyrst og fremst í kynferðislegu skyni en einnig í nauðungarvinnu, líffærasölu, þrælahald á heimilum og í þvinguð hjónabönd, glæpastarfsmi, betl og ólöglega ættleiðingu.