A-Ö Efnisyfirlit

Maraþonkosning um sæti í Öryggisráðið

Aser

AserAserbæjan hreppti fimmtánda og síðasta sætið sem eftir átti að skipa í Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna fyrir árin 2012 og 2013 eftir sannkallaða Maraþonkosningu á Allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna sem lauk í gærkvöld.

Aserbæjan bauð sig fram til að skipa sæti sem hefð er að Austur-Evrópuþjóð skipi. Eftir 17 umferðir náði ríkið 155 atkvæðum og þótti þá ljóst að það næði þeim tveimur þriðju hlutum atkvæða sem nauðsynleg eru til að hljóta kjör. Aserbæjan átti í höggi við Slóveníu. 

Alls voru fimm ríki kosin til að fylla þau tíu sæti sem ekki eru eyrnarmerkt ríkjunum sem hafa neitunarvald: Bandaríkjunum, Bretlandi, Frakklandi, Kína og Rússlandi. Nýju ríkin í Öryggisráðinu auk Aserbæjan eru Guatemala, Marokkó, Pakistan og Tógó. Fimm ríki eiga svo eitt ár eftir af kjörtímabili sínu en þau eru Indland, Kólombía, Portúgal, Suður-Afríka og Þýskaland. Öll ríkin tíu eru kjörin á grundvelli fyrirfram ákveðinnar landfræðilegrar skiptingar.