Apríl 201. Þrátt fyrir fyrri loforð Kikwete, Tansaníuforseta, hafa stjórnvöld hafist handa á ný við að reka frumbyggja af kyni Masaai af löndum sínum í Loliondo.
Aðgerðirnar hófust í síðasta mánuði og hafa 114 býli verið brennd til grunna. 3 þúsund manns hafa misst heimili sín og hafast við undir berum himni án matar, lyfja og verndar.

Félag Sameinuðu þjóðanna í Finnlandi hefur stutt landaréttindi Masaai-fólksins í samvinnu við Sama-ráðið finnska og önnur norræn ríki.
„Við höfum átt samstarf við Samaráðið síðan 2009. Fyrst unnum við að athugunum frumbyggja á loftslagsbreytingum og því næst tókum við upp á okkar arma önnur brýn mál að þeirra mati, svo sem landnýtingu og eignarhald á landi og þýðingu þess fyrir menningu auk nýtir náttúruauðlind,“ segir Jenni Kauppila hjá finnska félagi SÞ í viðtali við Norræna fréttabréfið.
Lífsviðurværi 80 þúsunda í hættu
OBC- fyrirtækið hefur starfað í Loliondo síðan 1992 og hefur lagt einkaflugvöll og reist veiðihús á landinu. Á meðal gesta hafa verið 
„Á undirbúningsfundi fyrir Heimsþing frumbyggja 2014, kynntumst við samvinnu norskra Sama og Masaai fólksins frá Loliondo og buðum fulltrúum þeirra á vinnufundi sem við héldum í September 2013 í Zanzibar,” segir Kauppila. “Á vinnufundunum kynntum við þátttakendur hugmynd um myndbandagerð að fordæmi Masaai samfélaga í Kenía sem fjölluðu um loftslagsbreytingar.”
Masaai vinna myndbönd frá grunni

„Við, Maasai-ar frá Loliondo vorum rekin á brott frá löndum okkar í því sem nú Serengeti þjóðgarðurinn. Frá þeim tíma höfum við barist fyrir réttindum okkar. Okkar land er grundvöllur alls. Forfeður okkar bjuggu þar og þar eru þeir grafnir. Landið er allt semvið eigum, þar er byggð okkar, skólar og vatnsból,“ segir einn Maasai-anna í myndbandinu.
Masaai-ættbálkurinn eru að mestu leyti hirðingjar . Allt snýst um nautgripahjörðina sem er aðaluppspretta fæðu og mælikvarði auðs. Landið í 
Loftslagsbreytingar eru ógn
Loftslagsbreytingar hafa lagt auknar byrðar á íbúana sem gera deilurnar um landið enn milkilvægari. „Það er satt sem fólk segir um loftslagsbreytingar. Þessi á var mjög falleg. Vatnið dugði fram í september en núna er það horfið í júní. Í ár var lítil úrkoma þannig að vatnsborðið var enn lægra. Áin var uppspretta lífs okkar. En nú er hún þurr. Heimurinn hefur breyst mikið,“ segir í myndbandinu.
Myndirnar eru af Masaii-fólkinu sem um ræðir í greininni og teknar af starfsfólki Félags Sameinuðu þjóðanna í Finnlandi.
