A-Ö Efnisyfirlit

Metnaðarfull ályktun um fjármögnun þróunar samþykkt í Sevilla

Ráðstefna um fjármögnun þróunar í Sevilla sett í morgun.
Ráðstefna um fjármögnun þróunar í Sevilla sett í morgun.

Ráðstefna um fjármögnun þróunar. Sevilla. 

Við erum hér í Sevilla í þágu breytinga,” sagði yfirmaður Sameinuðu þjóðanna við upphaf leiðtogafundar um fjármögnun þróunar sem hófst á Suður-Spáni í dag. Aðalframkvæmdastjórinn, António Guterres, hvatti til þess að tryggðar yrðu þær 4 trilljónir Bandaríkjadala, sem skortir til að þróunarlönd geti náð Heimsmarkmiðunum um sjáflbæra þróun.

Fundurinn í Sevilla er fjórða alþjóðlega ráðstefnan um fjármögnun þróunar (ensk skammstöfun: FFD4). Strax við upphaf ráðstefnunnar var samþykkt ályktun sem nefnd er Skuldbindingar í Sevilla (Sevilla Commitment or Compromiso de Sevilla). Hún felur í sér samning, sem er afrakstur samningaviðræðna ríkisstjórna og er stefnt að því að hún verði grunnur endurnýjaðrar rammaáætlunar um fjármögnun þróunar.

Ráðstefna um fjármögnun þróunar í Sevilla.
Ráðstefna um fjármögnun þróunar í Sevilla.

Á meðal skuldbindinganna eru skref í þá átt að brúa 4 trilljóna Bandaríkjadala fjárfestingarbil, sem nauðsynlegt er til að Heimsmarkmiðin um sjálfbæra þróun verði að veruleika. Tekið er á skuldakreppunni og fjallað um umbætur á reglum alþjóðlega fjármálakerfisins. Nauðsyn krefur að það verði réttlátara og gegnsærra og þarfir fólks verði miðlægar með það að markmiði að vekja vonir fólks um víða veröld.

„Þessi ráðstefna snýst ekki um góðgerðastarfsemi,” sagði Guterres í setningarræðu sinni. „Hún snýst um að fjárfesta í þeirri framtíð sem við viljum í sameiningu.”

Ráðstefna um fjármögnun þróunar í Sevilla sett í morgun.
Ráðstefna um fjármögnun þróunar í Sevilla var sett í morgun.

Rúmlega 15 þúsund ráðstefnugestir

FFD4-ráðstefnan stendur yfir til 3.júlí. Spánn er gestjgafi og var Felipe IV konungur viðstaddur opnunina. Á meðal fimmtán þúsund þátttakenda eru nærri 60 yfirmenn ríkja og ríkisstjórna, ráðherrar, yfirmenn alþjóðastofnana á borð við Alþjóðabankann, Alþjóða gjaldeyrissjóðinn og Heimsviðskiptastofnunina. Auk funda í ráðstefnusal eru rúmlega 470 sérstakir viðburðir af ýmsu tagi í tengslum við ráðstefnuna.

„Það er kominn tími til að taka skref fram á við. Það nægir ekki að ítreka fyrri skuldbindingar heldur þarf að ganga lengra. Það þarf að gera skuldastöðu sjálfbæra, tryggja fjárhagslegt réttlæti og standa við skuldbindingar okkar um alþjóðlega samvinnu,“ sagði Pedro Sánchez forsætisráðherra Spánar.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra á Ráðstefnunni um fjármögnun þróunar.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra á Ráðstefnunni um fjármögnun þróunar. Mynd: Utanríkisráðuneytðið

Breytt um stefnu

FFD4-ráðstefnan byggir á þeirri hreyfingu sem hrundið var af stað með Sáttmála framtíðarinnar, sem veraldarleiðtogar samþykktu í september 2024. Þar samþykktu ríki heims að auka fjárveitingar til Heimsmarkmiðanna, takast á við skuldabyrði þróunarríkja og hraða löngu tímabærum umbótum á uppbyggingu alþjóðlega fjármálakerfisins.

„Við erum saman komin hér í Sevilla til að breyta um stefnu,” sagði Guterres í opnunarræðu sinni. „Við erum komin saman til að lagfæra og endurnýja vélina sem knýr þróun til að hraða fjárfestingum á þeim hraða og af þeirr stærðargráðu sem er nauðsynleg. Og við þurfum að endurnýja sanngirni og réttlæti í allra þágu.“