Jöklar um allan heim tapa árlega 273 milljörðum tonna af ís. Þetta jafnast á við árlega vatnsneyslu heimsbyggðarinnar í 30 ár að sögn sérfræðinga Sameinuðu þjóðanna. Þessi tala nær ekki til Grænlandsjökuls og Suðurskautslandsins. Alþjóðlegur dagur jökla er haldinn í fyrsta skipti á vegum Sameinuðu þjóðanna í dag 21.mars.
Jöklar í mörgum heimshlutum munu heyra sögunni til í lok þessarar aldar. Ef þeir halda áfram að bráðna á sama hraða og nú er, kann lífsviðurværi hundruð milljóna manna, sem búa niðurstreymis, að vera í hættu, að sögn loftslagssérfræðinga Sameinuðu þjóðanna.
Akbar Asif22
Creative Commons Attribution-Share Alike 4.0
Að viðbættum íshellum Grænlands og Suðurskautslandsins, hýsa jöklar heimsins um 70% ferskvatns í heiminum. Afkoma þeirra er mælikvarði á loftslagsbreytingar, því stærð þeirra helst yfirleitt óbreytt við stöðugt loftslag.
Hins vegar bráðna þeir nú fordæmalaust hratt sökum loftslagsbreytinga af mannavöldum, að sögn Sulagna Mishra vísindafulltrúa hjá Alþjóða veðurfræðistofnuninni (WMO).
Lífsafkoma hundruð milljóna í hættu
Á síðasta ári voru met slegin um öll Norðurlönd, á Svalbarða og í norðurhluta Asíu hvað rýrnun jökla varðar.
Creative Commons Attribution-Share Alike 3.0
Lífsviðurværi meir en 120 milljóna manna, sem búa í nágrenni hins 800 kílómetra langa Hindu Kush-fjallgarðs í vesturhluta Himalajafjalla frá Afganistan til Pakistans, er í hættu vegna bráðnunar jökla, að sögn Mishra.
Fjallgarðurinn hefur verið kallaður “þriðji póllinn” vegna þess gríðarlega magns vatns sem þar er hýst.
Fordæmislaust undanhald jökla
Allur þessi ís hverfur nú hratt. Fimm af síðustu sex árum hafa verið metár hvað varðar undanhald jökla að sögn WMO.
Þá tapaðist mesta ísmagn á tímabilinu frá 2022 til 2024 á nokkru þriggja ára tímabili.
„Við sjáum nú fordæmislausa breytingu á jöklum,” segir Mishra.
Ís á stærð við Þýskaland bráðnar
Talið er að jöklar (að undanskildu Grænlandi og Suðurskaustlandinu) hafi tapað meir en 9000 milljörðum tonna af massa sínum frá 1975.
„Þetta er álíka og 25 metra þykk ísblokk með flatarmáli Þýskalands;“ segir Michael Zemp forstjóri jöklarannsóknarstofnunarinnar WGMS. 273 milljarðar tonna af ís hafa tapast að meðaltali árlega frá aldamótunum 2000, bætti hann við og vitnar til nýrrar alþjóðlegrar rannsóknar, sem greint var frá í tímaritinu Nature.
„Til þess að setja það í samhengi þá er 273 milljarða tonna tap álíka og vatnsneysla mannkynsins í þrjátíu ár,” segir Zemp.
Í Mið-Evrópu hefur 40% íssins þegar bráðnað og miðað við núverandi hraða “munu jöklarnir í Ölpunum ekki lifa öldina af.”
Mishra hjá WMO tekur í sama streng. Ef ekki er hægt á núverandi losun gróðurhúsalofttegunda „og hitastig hækkar jafnmikið og nú er mun 80% minni jökla hverfa fyrir 2100,” í Evrópu, Austur-Afríku, Indónesíu og víðar.
Alþjóðlegur dagur jökla sjá nánar hér og hér.
