Mikill stuðningur við alþjóðlega samvinnu

0
741
Fána Sameinuðu þjóðanna
Fána Sameinuðu þjóðanna

Heimsbyggðin hefur þessa stundina mestar áhyggjur af aðgangi að heilsugæslu, hreinu drykkjarvatni, hreinlætisaðstöðu og menntun. Þetta eru niðurstöður umfangsmikillar könnunar Sameinuðu þjóðanna á afstöðu til heimsmála. Hún er gerð í tilefni af 75 ára afmæli samtakanna.

Meir en ein milljón manna um allan heim svaraði spurningum í könnun sem var öllum opin heimsbúum. Þegar spurt var um brýnustu málefni líðandi stundar drógu svörin dám af heimsfaraldrinum sem nú herjar á veröldina. Auk ofangreindra atriða, voru oftast nefnd þörf á aukinni alþjóðlegri samsttöðu. Einnig var stuðningur við þá sem harðast hafa orðið úti og aukinn jöfnuður ofarlega á baugi.

Þegar litið er til framtíðar höfðu langsamlega flestir svarenda áhyggjur af loftslagsmálum og spjöllum á náttúrulegu umhverfi okkar. Á meðal annara forgangsatriða sem nefnd voru, má nefna að tryggja aukna virðingu fyrir mannréttindum, að leysa deilur, berjast gegn fátækt og uppræta spillingu.

Ímynd Sameinuðu þjóðanna

SÞ75 logoMeir en 87% svarenda töldu  samvinnu á heimsvísu þýðingarmikla við lausn aðkallandi vanda og að heimsfaraldurinn auki enn þörfina á alþjóðlegri samvinnu.

Sjötíu og fimm árum eftir stofnun samtakanna töldu sex af hverjum tíu að Sameinuðu þjóðirnar hefðu stuðlað að því að gera heiminn betri en ella. Ef litið er til framtiðar töldu 74% að Sameinuðu þjóðirnar væru „þýðingarmiklar” við lausn núverandi áskorana.

Hins vegar töldu svarendur að Sameinuðu þjóðirnar yrðu að breytast og endurnýjast. Þær þyrftu að hleypa fleirum að ákvarðanatöku og taka tillit til fjölbreytni 21.aldar auk þess að auka gagnsæi, ábyrgð og skilvirkni.

Hnattræn umræða

„Við höfum á þessu afmælisári efnt til hnattrænnar samræðu og niðurstöðurnar eru sláandi,“ segir António Guterres aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna. „Fólk hugsar stórt og lætur í ljós ákafa þörf fyrir alþjóðlega samvinnu og samstöðu á heimsvísu.  Á 75 ára afmælinu stöndum við í svipuðum sporum og árið 1945. Við verðum að taka þau skref sem þarf að taka. Okkur ber að sýna samstöðu sem aldrei fyrr til þess að glíma við núverandi neyðarástand, koma hjólum heimsins á hreyfingu að nýju og halda fast í hugsjónir stofnskrár samtakanna.“

Sameinuðu þjóðirnar hófu samráð við heimsbyggðina í janúar 2020 í tilefni af 75.starfsári sínu. Könnun á væntingum fólks og skoðunum á alþjóðamálum var hryggjarstykkið í samræðu á heimsvísu.  21.september hafði meir en ein milljón manna alls staðar að og úr öllum stéttum tekið þátt í könnuninni, en hún er opin til ársloka.

Könnunin er enn opin og má svara á íslensku hér.