Mikilvæg steinefni. Sérhver rafbíll, vindmylla, sólarrafhlaða, raforkukerfi og snjallsími; allt er þetta háð steinefnum sem unnin eru úr jörðu. Mikilvæg steinefni eru ómissandi hluti margra nútímatæknilausna. Án þeirra væru margar hreinar orkulausnir einfaldlega ekki til.
Eftir því sem lönd flýta fyrir umskiptum yfir í hreina orku (sem ekki byggir á jarðefnaeldsneyti) eykst eftirspurn eftir steinefnum eins og litíum, kóbalti, nikkeli, kopar og grafíti hratt.
„Heimur sem knúinn er af endurnýjanlegum orkugjöfum er heimur sem þyrstir í mikilvæg steinefni,“ segir António Guterres, aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna.
Efnahagsleg tækifæri
Fyrir mörg lönd felur þetta í sér fordæmalaust efnahagslegt tækifæri. Samkvæmt viðskiptastofnun Sameinuðu þjóðanna (UNCTAD) er hin mikla eftirspurn eftir mikilvægum steinefnum að endurmóta landfræðilega og iðnaðarlega gangverki og setja auðlindarík þróunarlönd í öndvegi í nýjum virðiskeðjum.
Orkuskiptin fela í sér „mikið þróunartækifæri“ fyrir þessar þjóðir: UNCTAD segir að með því að færa sig frá útflutningi á hráum steinefnum yfir í staðbundna vinnslu og virðisauka geti þær aukið efnahagslegan ávinning verulega. Til dæmis þrefaldaði staðbundin vinnsla á kóbalti í Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó næstum útflutningsverðmæti, sem jókst úr 167 milljónum dala í 6 milljarða dala árið 2022.
Auðlindir hafa ýtt undir átök
En sums staðar hefur samkeppni um þessar auðlindir ýtt undir átök, spillingu, umhverfisspjöll og mannréttindabrot. Léleg stjórnsýsla getur breytt verðmætum náttúruauðlindum í drifkraft átaka, spillingar og umhverfisrýrnunar.
Sameinuðu þjóðirnar hjálpa til við að tryggja að auður úr steinefnum gagnist samfélögum frekar en að fjármagna ofbeldi.
Í þessari viku spyr Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna grundvallarspurningar:
Geta steinefnin sem knýja grænu umskiptin einnig orðið grundvöllur friðar og sjálfbærrar þróunar?
Náttúruauðlindir hafa lengi gegnt hlutverki í átökum.
Ráðið ræðir nú hvenrig bregðast eigi við að:
- Vopnaðir hópar stjórni verðmætum steinefnanámum.
- Ólögleg námuvinnsla fjármagni átök.
- Glæpanet hagnist á smygli.
- Veik stjórnsýsla ýti undir óstöðugleika.
Hin stærri spurning er hvort vaxandi alþjóðleg eftirspurn eftir mikilvægum steinefnum gæti aukið landfræðilega spennu – eða þess í stað orðið drifkraftur friðar og þróunar.
Stórar námur mikilvægra steinefna eru víðs vegar um Afríku, Rómönsku Ameríku og hluta Asíu.
Fyrir mörg framleiðslulönd tákna þær gríðarlegt tækifæri til að skapa störf, auka fjölbreytni í hagkerfum og afla opinberra tekna.
En árangur veltur á því hvernig þessum auðlindum er stjórnað.
Af hverju eykst eftirspurnin svona hratt?
Margir sérfræðingar bera nú stefnumarkandi mikilvægi þeirra saman við olíu á tuttugustu öldinni.
Alþjóðleg orkuskipti eru að hraða sér.
- Rafbílar þurfa um sex sinnum meira af steinefnum en hefðbundnir bílar.
- Vindorkuver á hafi úti þurfa um 13 sinnum meira af steinefnaauðlindum en gasorkuver.
- Búist er við að eftirspurn eftir mörgum mikilvægum steinefnum þrefaldist fyrir árið 2030.
Námuvinnsla er nauðsynleg, en henni fylgir einnig verulegur umhverfiskostnaður ef hún er illa stjórnað
.Námugröftur sem lýtur litlu eftirliti getur stuðlað að:
- Skógareyðingu
- Vatnsmengun
- Tapi á líffræðilegum fjölbreytileika
- Jarðvegseyðingu
- Losun gróðurhúsalofttegunda
Margar námur eru einnig staðsettar nálægt samfélögum frumbyggja og viðkvæmum vistkerfum.
Sjá einnig hér.
