Fatlað fólk einn milljarður

0
872

Talið er að 15% jarðarbúa eða einn milljarður teljist til fatlaðs fólks. Af þeim búa 80% í lág- og meðaltekjuríkjum. Á Íslandi er talið að fatlað fólk sé um 55 þúsund.

Noregur, Gana og Alþjóðlegt bandlag um fötlun (IDA) halda í sameiningu Alþjóðlegan leiðtogafund um fötlun (the Global Disability Summit), 15.-17.febrúar.


Osló, höfuðborg Noregs er gestgjafi fundarins en hann fer hins vegar að miklu leyti fram með fjarfundarbúnaði. Til hans er boðið ríkisstjórnum, fyrirtækjum og sérfræðingum í þróunarmálum, auk samtaka fatlaðs fólks. Markmiðið er með að fylkja liði um skuldbindingar til að greiða fyrir breytingum og aðgerðum til að auka þátttöku fólks sem glímir við fötlun í samfélaginu..

Þrátt fyrir að vera 15% íbúa líða milljónir fólks með föltun fyrir fordóma, mismunun og hindranir sem standa vegi fyrir fullri þjóðfélagslegri þátttöku þess.

Hart úti í COVID-19

Fatlað fólk hefur einnig orðið sérstaklega hart úti í COVID-19 faraldrinum. Hlutfallslega fleiri í þeim hópi hafa látist vegna þrálátra tálmana í heilbrigðiskerfum. Þá hafa margir nemendur með fötlun ekki fengið aðgang að tækni og hjálpargögnum til að geta stundað fjarnám með skilvirkum hætti. Víða hefur fatlað fólk misst vinnuna. „Það hefur verið fyrst til að þola brottrekstur og síðast til að vera endurráðið. Þá hafa konur og stúlkur í þessum hópi orðið enn frekar fyrir barðinu á ofbeldi og misnotkun,“ segir António Guterres aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna í ávarpi til leiðtogafundarins.

„Síðustu tvö ár hafa sýnt okkur fram á, með sársaukafullum hætti, brýna nauðsyn þess að við vinnum öll samana að því að efla réttindi fatlaðs fólks um allan heim.“

Þetta er annar alheims leiðtogafundurinn en hinn fyrri fór fram í Lundúnum árið 2018. Búist er við að á meðan á fundinum stendur, 15.-17. Febrúar muni samtök og ríkisstjórnir tilkynna um 1.544 nýjar skuldbindingar í þágu réttindi fatlaðs fólks í meir en 150 ríkjum.

8 ár til að ná Heimsmarkmiðunum

„Það gleður mig að vera í forystu leiðtogafundarins ásamt foseta Ghana og Alþjóðlega bandalaginu um fötlun,“ sagði Jonas Gahr Støre forsætisráðherra Noregs í opnunarræðu sinni. „Það eru aðeins átta ár til stefnu að hrinda í framkvæmd ákvæðum Heimsmarkmiðanna um sjálfbæra þróun. Við verðum því að sjá til þess að fólk með fötlun geti tekið fullan þátt í félagslegri- og efnahagslegri þróun til jafns við aðra í samfélaginu.“

Auk forsætisráðherra Noregis og Nana Addo Dankwa Akufo-Addo forseta Gana munu fulltrúar 15 ríkisstjórna ávarpa fundinn. Fjöldi stofnana Sameinuðu þjóðanna og samtaka á borð við Rauða Krossinn og Barnaheill taka þátt í fundinum. Alls eru 4400 fulltrúar á leiðtogafundinum og 2200 á ungmennafundinum sem heldinn er innan vébanda hans.

Sjá beina útsendingu frá leiðtogafundinum hér.

 Sjá nánar um fundinn hér og hér.