A-Ö Efnisyfirlit

Milljónir búa við örbirgð þrátt fyrir fordæmalausa auðlegð heimsins

Alþjóðlegur dagur helgaður útrýmingu fátæktar
Alþjóðlegur dagur helgaður útrýmingu fátæktar

Alþjóðlegur dagur helgaður útrýmingu fátæktar. Fátækt. Þrátt fyrir verulega aukna velmegun í stórum hluta heims og félagslegar og efnahagslegar framfarir búa 808 milljónir manna – eða 1 af hverjum 10 um allan heim – við mikla fátækt árið 2025. 17. október er alþjóðlegur dagur helgaður útrýmingu fátæktar 2025.

Fátæktarviðmið voru hækkuð úr 1,90 dollurum á dag árið 2021 í 2,15 dollara árið 2022 . Nú verða 2,8 milljónir manna, meira en þriðjungur íbúa heimsins,að gera sér að góðu að lifa á milli 2,15 og 6,85 dollurum á dag. Ef núverandi þróun heldur áfram munu 8,9 prósent íbúa heimsins enn búa við mikla fátækt árið 2030.

Markmið dagsins er „Að binda enda á félagslega og stofnanalega vanrækslu með því að tryggja virðingu og skilvirkan stuðning við fjölskyldur.”

Börn að leik í Uttar Pradesh, Indlandi
Börn að leik í Uttar Pradesh, Indlandi. Mynd: UNICEF/Niklas Halle’n

Allt of margir finna fyrir efnahagslegu óöryggi

60 prósent jarðarbúa telja sig berjast í bökkum og 12 prósent segjast þjást vegna fátæktar. Þetta kemur fram í skýrslu Efnahags- og félagsmálaráðs Sameinuðu þjóðanna: „Ný samstaða um stefnumótun til að flýta fyrir félagslegum framförum“.

Agra, Uttar Pradesh, Indlandi,
Agra, Uttar Pradesh, Indlandi, Mynd: Dulana Kodithuwakku/Unsplash

Nýliðin kreppa, vaxandi ógnir af völdum loftslagsbreytinga og aukin átök minna okkur á að margir eiga á hættu að verða fátækt að bráð jafnvel í löndum þar sem hefur tekist að draga úr henni.

Að lifa á andvirði 6,85 dollurum á dag tryggir ekki efnahagslegt öryggi. Margir launþegar halda áfram að vinna óformleg og óstöðug störf, oft alla ævi, og því er efnahagslegur óstöðugleiki útbreiddur. Næstum 60 prósent fólks um allan heim eru mjög áhyggjufull um að missa vinnuna sína og finna ekki nýja. Jafnvel launþegar sem kunna að hafa gert sér vonir um að tryggja sér örugt millistéttarlífs rétt eins og fyrri kynslóðir, eiga í erfiðleikum með að finna efnahagslegan stöðugleika.

Alþjóðlegur dagur helgaður útrýmingu fátækrar, sjá nánar hér.