Ávarp framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna á 17 alþjóðlega minningardegi um þjóðarmorðið í Rúanda, 7. apríl 2011:
Í dag heiðrum við minningu meir en 800 þúsund manna sem voru myrtir í þjóðarmorðinu í Rúanda árið 1994. Hugur okkar er einnig hjá eftirlifendunum en þeirra beið að endurreisa sundruð samfélög og heila þjóð. Á þessum minningardegi skulum við votta íbúum og ríkisstjórn Rúanda virðingu okkar fyrir þá þrautseigju og reisn sem þau hafa auðsýnt í viðleitni sinni til að endurreisa þjóðina og græða þau sár sem þessir grimmilegu sögulegu atburðir skildu eftir sig. Ég hvet til þess að haldið verði áfram að rækta þann sameiningaranda og þá samræðulist sem nauðsynleg eru til að græða, sætta og endurbyggja.
Ban Ki-moon heimsækjir minningarsafnið um þjóðarmorðið í Rúanda árið 2008.
Sameinuðu þjóðirnar eru staðráðnar í því að hindra að slíkir harmleikir endurtaki sig. Alþjóðasamfélagið viðurkenndi að hafa brugðist sameiginlega í því að koma almenningi til hjálpar í Rúanda og vernda fórnarlömb Balkanstríðanna. Þetta leiddi til þess að samþykkt var á Heimsleiðtogafundinum 2005 skyldan til að vernda. Nýlegar aðgerðir Öryggisráðsins til að bregðast við ástandinu í Líbýu, sérstaklega samþykkt ályktana 1970 og 1973, eru mikilvæg skref á þessari leið.
Alþjóðlegi refsidómstóllinn fyrir Rúanda, Alþjóðlegi glæpadómstóllinn og aðrir alþjóðlegir dómstólar senda mikilvæg skilaboð um að heimurinn mun ekki þola refsileysi fyrir meiri háttar brot á mannréttindum og alþjóðlegum mannúðarlögum. Sérstakir ráðgjafar mínir um Varnir gegn þjóðarmorði og Skylduna til að vernda fylgjast með heimsmálum til að sjá hættumerki á fyrstu stigum. Við verðum sífellt að vera á varðbergi.
Samkomulagið frá 2006 um öryggi, stöðugleika og þróun á Mikluvatnasvæðinu inniheldur viðauka um að hindra og refsa fyrir þjóðarmorð, stríðsglæpi og glæpi gegn mannkyninu. Ég hvet öll ríki á svæðinu til að hrinda því í framkvæmd að fullu og öllu. Ég hvet einnig til handtöku, framsals og saksóknar þeirra flóttamanna frá þjóðarmorðinu 1994 sem enn leika lausum hala, þar á meðal Felicien Kabuga.
Að hindra þjóðarmorð er hvort tveggja sameiginleg ábyrgð og ábyrgð hvers einstaklings. Eftirlifendurnir í Rúanda neyða okkur til að horfast í augu við þá óþægilegu staðreynd að það er hægt að koma í veg fyrir slíkan harmleik. Eina leiðin til þess að heiðra minningu þeirra sem létust í Rúanda fyrir sautján árum er að tryggja að slíkir atburðir endurtaki sig ekki.
Ban Ki-moon.

