Alþjóðlegi berkladagurinn. Berklar.
Baráttan gegn berklum hefur bjargað 79 milljónum mannslífa frá því árið 2000. Hins vegur ógnar mikill og skyndilegur niðurskurður fjárveitinga til alþjóðlegra heilbrigðismála þeim árangri. Þá hefur vaxandi lyfjaónæmi um alla Evrópu og átök í Mið-Austurlöndum, Afríku og Austur-Evrópu sett strik í reikninginn hjá þeim sem síst skyldi. Alþjóðlegi berkladagurinn er í dag 24.mars.
1.2 látast árlega
Alþjóða heilbrigðismálastofnunin (WHO) hvetur til þess í ávarpi á Alþjóðlega berkladeginum að tryggt verði fjármagn til þess að verja og viðhalda umönnun og þjónustu fyrir fólk vegna berkla hvarvetna. Berklar eru enn á meðal banvænustu smitsjúkdóma og leiða meir en eina milljón til dauða árlega.
Berklar herjuðu á Ísland lengur en flest nágrannalöndin. Þeir eru nú fremur sjaldgæfir á Íslandi en um það bil eitt tilfelli greinist í hverjum mánuði eða 6-20 tilfelli á ári, að sögn Landlæknisembættisins.
Alþjóðlegi berkladagurinn 2025 er haldinn undir vígorðinu Já! Við getum bundið enda á berkla: Skuldbindum, fjárfestum, náum árangri. „Hinn mikli árangur sem náðst hefur í baráttunni gegn berklum í heiminum á síðustu tuttugu árum er nú í hættu. Niðurskurður á fjárveitingum er farinn að raska aðgangi að þjónustu vegna forvarna, skimun og meðferðar berklasjúklinga,” segir Dr Tedros Adhanom Ghebreyesus, forstjóri WHO.
Alheimsviðnám í hættu
27 ríki standa frammi fyrir að viðnám þeirra gegn berklum er að hruni komið. Niðurskurðurinn 2025 kemur til viðbótar langvarandi fjársvelti baráttunnar gegn berklum. Árið 2023 tók aðeins að útvega rúman einn fjórða (26%) þeirra 22 milljarða Bandaríkjadala, sem talið var þurfa til að fjármagna forvarnir og umönnun berklasjúklinga í heiminum.
Lykiltölur
- 79 milljónir mannslífa, sem alheimsbaráttan gegn berklum hefur bjargað frá 2000.
- 8 milljónir manna veiktust af berklum árið 203.
- 25 milljón manna lést af völdum berkla árið 2023.
