A-Ö Efnisyfirlit

Ný 40 milljarða dala framlög; gæti bjargað lífi 16 milljóna kvenna og barna

alt

 

New York 22. september:  Leiðtogafundi Sameinuðu þjóðanna um Þúsaldamarkmiðin um þróun lauk í dag með samþykkt aðgerðaáætlunar til að ná markmiðunum átta til höfuðs fátækt í heiminum. Tilkynnt var um nýjar aðgerðir í þágu heilbrigðis kvenna og barna og annað frumkvæði í baráttunni gegn fátækt, hungri og sjúkdómum.

 

Hagsmunaaðilar jafnt úr röðum leiðtoga ríkisstjórna sem einkageirans og almannasamtaka, tilkynntu um meiri háttar átak til að hraða árangri í að bæta heilsu kvenna og barna: alls nema ný framlög andvirði rúmra 40 milljarða Bandaríkjadollara á næstu fimm árum. 

 

Ban Ki-moon, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna átti frumkvæðið að nýju “Hnattrænu áætluninni í þágu heilbrigðis kvenna og barna” (The Global Strategy for Women’s and Children’s Health). Áætlunin er samstillt átak sem nær til allra heimshorna og eru helstu markmiðin þessi:

 

• Að bjarga lífi meir en sextán milljóna kvenna og barna.
• Hindra 33 milljónir óæskilegar þunganir.
• Forða 120 milljónum barna frá lungnabólgu…
• .. og 88 milljónum barna frá vaxtartruflunum sökum vannæringar ,
• Efla varnir gegn banvænum sjúkdómum á borð við malaríu og HIV/Alnæmi og tryggja aðgang kvenna og barna að fullnægjandi heilsugæslu og menntuðu heilbrigðisstarfsfólki.

 

“Við vitum hvers er þörf til að bjarga lífi kvenna og barna og við vitum fullvel að hagur kvenna og barna er mikilvægur í öllum Þúsaldarmarkmiðunum,” sagði Ban Ki-moon, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna. “Í dag höfum við séð forystu af því tagi sem okkur hefur lengi vantað” .

alt

Jens Stoltenberg, forsætisráðherra Noregs og Ban Ki-moon í höfuðstöðvum Sameinuðu þjóðanna í gær. Norðmenn hafa leikið stórt hlutverk í nýju frumkvæði í þágu kvenna og barna. SÞ-mynd: Eskinder Debebe.

Niðurstöður fundarins eru teknar saman í skjalinu: Að standa við loforðið: Sameinuð í að ná Þúsaldarmarkmiðunum um þróun (Keeping the Promise: United to Achieve the Millennium Development Goals). Þar ítreka leiðtogar ríkja heimsins skuldbindingar sínar til að vinna að framgangi Þúsaldarmarkmiðanna fyrir árið 2015.

 

Niðurstöðurnar byggja á dæmum um góðan árangur og ályktanir sem draga má af starfinu undanfarintíu ár. Þar eru tilgreind áþreifanleg skref sem öllum hagsmunaaðilum ber að sameinast um til að hraða framgangi markmiðanna átta, hvers fyrir sig.

 

Þar er einnig ítrekað að þrátt fyrir efnahagslega og fjárhagslega kreppu hafi umtalsverðum árangri verið náð í baráttunni gegn fátækt, í að auka skólasókn barna og bæta heilsu í mörgum ríkjum og að markmiðin séu framkvæmanleg.