A-Ö Efnisyfirlit

Nýársávarp aðalframkvæmdastjórans: Látum 2025 marka nýtt upphaf

Nýársávarp aðalframkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna. 2025.

Síðustu tíu ár hafa verið heitustu tíu ár sögunnar, þar á meðal árið 2024. Þetta kemur fram í nýársávarpi António Guterres aðalframkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna. Í ávarpinu hvetur hann þjóðir heims til að láta komandi ár marka nýtt upphaf.

Ávarpið fer hér á eftir:

Nýársávarp aðalframkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna

Allt árið 2024 hefur verið erfitt að finna von. Styrjaldarátök hafa valdið hrikalegum sársauka og þjáningu og fólk hefur hrakist á flótta. Ójöfnuður og sundrung hafa þrifist og sáð hefur verið fræjum spennu og vantrausts.

Og í dag get ég tilkynnt opinberlega að við höfum nú að baki okkar áratug banvæns hita.

Síðustu 10 ár eru heitustu ár sem um getur, þar á meðal árið 2024.

Við höfum upplifað hrun loftslagsins í beinni útsendingu.

Við verðum að sveigja af leið eyðileggingar og við megum engan tíma missa.

Árið 2025 verða ríki heims að beina heiminum inn á öruggari braut, með því að skera rækilega niður losun og styðja umskipti yfir til framtíðar endurnýjanlegra orkugjafa.

Slíkt er þýðingarmikið og mögulegt.

Vonir um breytingar

Jafnvel á myrkustu dögum, hef ég sé von knýja fram breytingar.

Ég hef séð von í líki baráttufólks, ungs og gamals, sem hafa gefið framförum rödd.

Ég hef séð vonina í mannúðarstarfsfólki sem hefur unnið hetjudáðir með því að sigrast á tröllauknum hindrunum til að koma þeim, sem höllustum standa fæti, til hjálpar.

Ég hef séð von í þróunarríkjum, sem berjast fyrir fjárhagslegu réttlæti í loftslagsmálum.

Ég hef séð vonina í hópi vísindamanna og uppfinningamanna, sem hafa brotið nýtt land í þágu mannkynsins.

Leiðtogafundurinn stendur yfir 22.-23.september
Leiðtogafundurinn um framtíðina var haldinn 22.-23.september

Sáttmáli framtíðarinnar

Og ég sá von í september, þegar veraldarleiðtogar komu saman til að samþykkja Sáttmála framtíðarinnar.

Sáttmálinn er nýtt átak til að stuðla að friði með afvopnun og til að koma í veg fyrir átök

Hann stuðlar að umbótum á alþjóðlega fjármálakerfinu með það fyrir augum að það styðji og endurspegli öll ríki.

Sáttmálinn er lóð á vogarskálar aukinna tækifæra fyrir konur og ungt fólk.

Með honum eru settar skorður við nýrri tækni í því skyni að fólk sé í fyrirrúmi en ekki gróði; og réttindi verði í forgangi en ekki glórulausir algóryþþmar.

Og ætíð er í honum haldið fast við gildi og meginsjónarmið mannréttinda, alþjóðalaga og Stofnskrár Sameinuðu þjóðanna.

Upphaf Leiðtogafunar um framtíðina. 22.september 2024.
Upphaf Leiðtogafunar um framtíðina. 22.september 2024. Mynd: UN Photo/Loey Felipe

Engar tryggingar

Það eru engar tryggingar fyrir því hvað árið 2025 ber í skauti sér.

En ég heiti því að styðja við bakið á öllum þeim sem vilja stuðla að friðsælli, jafnari, stöðugari og heilbrigðari framtíð fyrir alla jarðarbúa.

Við getum í sameiningu látið árið 2025 marka nýtt upphafi.

Ekki sem sundraður heimur, heldur sem sameinaðar þjóðir.

Sjá einnig hér og hér